SAS-starfsfólk fær viku til að ákveða sig

Þota SAS
Þota SAS www.flysas.com

Starfsfólk flugfélagsins SAS fær viku til að ákveða hvort það gengur að skilmálum stjórnenda fyrirtækisins um launalækkanir. Lækkunin nemur um 15%. Stéttarfélag SAS-starfsmanna í Noregi tilkynnti í morgun að það samþykkti ekki þessar lækkanir.

Danskir starfsmenn SAS eru að skoða málið. Bente Sorgenfri formaður danska stéttarfélagsins, FTF, sem er meðal annars félag flugfreyja og -þjóna hjá SAS, segir í samtali við Politiken.dk að fundir verði haldnir í vikunni þar sem málið verður rætt og eftir það verði SAS tilkynnt um niðurstöðuna.

Sorgenfri dregur ekki dul á að henni þykir tillagan um launalækkunina ósanngjörn. „Mér sýnist að SAS hafi komið sér sjálft í þessa stöðu. Þar hafa slæmar viðskiptaákvarðanir verið teknar og sumar hafa ekkert með kjarnastarfsemina að gera,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK