Flugfargjöld lækkuðu þvert á spár

Flugfargjöld lækkuðu þvert á spár greiningaraðila. Verðbólgan lækkaði um 0,3%.
Flugfargjöld lækkuðu þvert á spár greiningaraðila. Verðbólgan lækkaði um 0,3%. Ómar Óskarsson

Samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofu Íslands hækkaði vísitala neysluverðs um 0,05% á milli nóvember og desember. Er þetta verulega undir þeirri hækkun sem spáð var, en opinberar spár gerðu ráð fyrir 0,3% til 0,4% hækkun milli mánaða. Í desember í fyrra hækkaði vísitalan um 0,4% frá fyrri mánuði, og lækkar því tólf mánaða taktur verðbólgunnar úr 4,5% í 4,2% á milli nóvember og desember.

Helstu ástæður fyrir þessari þróun er lækkun flugfargjalda, þvert á það sem almennt hefur gerst í desember á undanförnum árum, auk þess sem matvæli hækkuðu minna en spáð hafði verið. Þetta kemur fram í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka. Hingað til hefur hækkun á flugfargjöldum almennt verið á bilinu 12 til 25% í desember, en í þetta sinn lækkuðu þau um 3,7%.

Þá eru horfur vísitölunnar á næstu mánuðum einnig að færast til minni hækkunar, en fallið var frá ýmsum krónutöluhækkunum opinberra gjalda í lokameðferð fjárlaga í gær. Segir greiningardeildin að þegar stórir hækkunarmánuðir detta út í febrúar, mars og apríl gæti verðbólga farið niður fyrir 4% strax í janúar og nálgast 3% með vorinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK