Valgeir fyrsti svæðisstjóri WOW erlendis

Valgeir Bjarnason nýr svæðisstjóri WOW air í Mið-Evrópu
Valgeir Bjarnason nýr svæðisstjóri WOW air í Mið-Evrópu

Valgeir Bjarnason hefur verið ráðinn sem nýr svæðisstjóri WOW air í Mið-Evrópu með aðsetur í Berlín. Valgeir verður fulltrúi WOW air á meginlandi Evrópu og mun sjá um kynningu á vöru og þjónustu félagsins, halda utan um samskipti við ferðaskrifstofur, finna ný viðskiptatækifæri ásamt ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum.

Þetta er fyrsti svæðisstjórinn sem WOW ræður til sín á erlendri grundu. Hann starfaði áður sem afgreiðslustjóri hjá Flugfélagi Íslands á Reykjavíkurflugvelli, deildarstjóri tekjustýringar og áætlunargerðar hjá Flugfélagi Íslands og sem forstöðumaður tekjustýringar hjá Iceland Express. Valgeir hefur starfað hjá WOW air frá stofnun félagsins, fyrst sem forstöðumaður á sölusviði og núna sem svæðisstjóri Mið-Evrópu.

Efnisorð: WOW air
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK