Framkvæmdastjórinn sagði upp

Einar Ingimundarson sagði  starfi sínu sem framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa lausu í byrjun vikunnar. Uppsögnin er að frumkvæði Einars en hann mun vinna áfram hjá félaginu að ósk stjórnar þar til gengið hefur verið endanlega frá kaupum MP banka á Íslenskum verðbréfum. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Ég hef í nokkurn tíma haft hug á að skipta um starfsvettvang og á sjálfur frumkvæðið að þessari ákvörðun,“ er haft eftir Einari í tilkynningunni. „Hluthafar félagsins hafa nýlega samþykkt kauptilboð MP banka í félagið og væntanlega fylgja því einhverjar breytingar. Þó ég óttist ekki breytingar og lítist mjög vel á nýjan eiganda tel ég að nú sé ágætis tímapunktur til að skipta um vettvang. Ég mun þó að sjálfsögðu vinna af fullum heilindum með félaginu, núverandi hluthöfum og MP banka að því að klára þau viðskipti.” 

Viðskiptin sem hann vísar til eru þau að þann 15. maí var greint frá því að MP banki hefði gert tilboð í allt hlutafé í Íslenskum verðbréfum hf. og að tilskilinn meirihluti eigenda félagsins hafi gengið að skilmálum tilboðsins. Ekki er endanlega ljóst hvenær kaupin ganga í gegn en kostgæfniathugun stendur nú yfir.

Einar Ingimundarson hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum í maí 2008. Hann er lögfræðingur (mag.jur) frá Háskóla Íslands 2007 og hefur einnig lokið BS-prófi í hagfræði frá sama skóla. Einar hlaut hdl. réttindi í nóvember 2009. Hann var forstöðumaður lögfræðisviðs Íslenskra verðbréfa uns hann var ráðinn framkvæmdastjóri félagsins í ágúst 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK