Nota kuldann til að hreinsa vatn

Örn Ingi Ágústsson, Hlynur Sigurðsson, Birgir Jósafatsson og Þorsteinn Ingi …
Örn Ingi Ágústsson, Hlynur Sigurðsson, Birgir Jósafatsson og Þorsteinn Ingi Víglundsson. Á myndina vantar Pál Helgason. mbl.is/Kristinn Magnússon

Það hefur kannski ekki farið mjög hátt, en íslenska tæknifyrirtækið Thor-Ice hefur verið að gera mjög áhugaverða hluti á sviði vatnshreinsunar. Fyrr á árinu fékk Thor-Ice styrk frá tækniþróunarsjóði til að vinna að frekari þróun vatnshreinsitækninnar, en um er að ræða hugvitssamlega lausn sem getur stórbætt nýtingu vatns í matvælaframleiðslu.

Rætur Thor Ice liggja í smíði kælilausna fyrir sjávarútveg og þegar fyrirtækið var stofnað árið 2003 snerist starfsemin aðallega um að búa til ískrapastokka sem seldir voru til kælitæknifyrirtækja. Í framhaldinu fór Thor Ice að smíða eigin kælivélar og býr í dag til heildarlausnir fyrir kælingu í matvælaiðinaði.

Vandi að kæla stóra kjúklinga

Thor Ice hefur vakið athygli fyrir kælibúnað sem notaður er í kjúklingaverksmiðjum en þar er ískrapatæknin nýtt til að búa til ískristalla sem úðað er á nýslátraðan fuglinn til að bæta kælingu kjötsins til muna.

Þorsteinn Ingi Víglundsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Thor-Ice, útskýrir tæknina nánar: „Vandinn sem kjúklingaræktendur glíma við er að á tíu árum hafa fuglarnir stækkað mikið en kæliklefarnir í sláturhúsunum eru enn gerðir fyrir minni fuglana,“ segir hann en meðalstærð kjúklinga er núna um 1,8-2 kg og var áður 1,1 kg.

Ísúðanum er beint að þeim svæðum kjúklingsins þar sem hann er þykkastur. „Okkar lausn er viðbót við þá kælingu sem fyrir er í verksmiðjunum og hjálpar til að ná kælingunni niður í rétt hitastig. Þarf að ná kjúklingnum úr 8-10°C þegar hann kemur úr kæliklefanum niður í 4°C, og þar sem okkar tæki hafa verið notuð er að takast að kæla kjúklinginn enn meira en það,“ segir þorsteinn og bætir við að úðatæknin hafi verið þróuð í nánu samstarfi við Matfugl.

Nýlega voru ísbyssur Thor Ice teknar í notkun í kjúklingaverksmiðjum í Slóveníu og Ungverjalandi og segir Þorsteinn að þar hafi þessi viðbótarkæling komið sér vel þegar hitastigið úti fór upp í allt að 40°C. Betri kæling þýðir lengri endingartíma og að sögn Þorsteins á kjúklingur sem kældur er með aðferðum Thor Ice að geymast í allt að tólf daga, en kjúklingur kældur með gamla laginu getur tekið að skemmast á sex dögum.

Hreinsa vatn og búa til verðmætt þykkni

Vatnshreinsitæki Thor Ice byggist einnig á ískrapatækni. Nýlega keypti hollenskur kartöfluframleiðandi hreinsikerfi frá Thor Ice og notar til að hreinsa vökva sem fellur til þegar sterkja er unnin úr kartöflunum. „Mikið vatn þarf í sterkjuframleiðsluna og þarf fyrirtækið bæði að kaupa vatnið inn í verksmiðjuna og borga fyrir að farga því. Eftir að hafa síað óhreinindi úr vökvanum tökum við hann inn í kælistrokkana og búum til ískristalla. Kristallana má hreinsa frá vökvanum og þá situr eftir nk. þykkni sem er auðugt af steinefnum og amínósýrum. Ískristallarnir verða síðan aftur að vatni sem má nota á ný til sterkjugerðar en þykknið er hægt að selja og nýta t.d. í orkudrykki. Tekst með þessum hætti að endurnýta um 80-90% af vatninu og skapa á sama tíma verðmæta nýja afurð.“

Sömu hreinsitækni mætti nota víðar, s.s. þar sem saltvatn er hreinsað og síðan notað til matvælafarmleiðslu. Eru fyrirtæki í Kaliforníu áhugasöm um að nota Thor-Ice-hreinsibúnaðinn en þar er sjór tekinn inn, hreinsaður og síðan dælt aftur út í hafið. „Þar sem saltstyrkurinn eykst við hreinsunina er litið á það sem dælt er út sem mengun og sjá þessi fyrirtæki möguleika í því að nota okkar tækni til að hreinsa sjóinn enn betur svo að eftir sitji sterkari saltlausn sem mætti þá frekar nota til að búa einfaldlega til salt.“

Nýtir mun minni orku en eiming

Að hreinsa vatn með þessum hætti hefur marga kosti fram yfir eimingu. Munar mest um það að kælihreinsunin notar um einn sjötta af þeirri orku sem þarf til að hreinsa vatn með eimingu. „En upphitun hefur líka þann ókost að skemma prótín og amínósýrur og auka bakteríumagn. Með því að hreinsa í staðinn með kælingu varðveitum við næringarefnin og lágmörkum bakteríuvöxt,“ segir Þorsteinn.

Er óhætt að reikna með að Thor-Ice muni stækka töluvert á næstu árum, en í dag vinnur átta manna hópur hjá fyrirtækinu ef verktakar eru taldir með. Þorsteinn segir að stuðningur tækniþróunarsjóðs hafi komið sér mjög vel og vill hann núna láta fyrirtækið vaxa jafnt og þétt, en fara sér í engu óðslega. „Í dag eru hluthafarnir sextán talsins og allt fjölskylda og vinir og því þolinmótt fjármagn. Ef við tökum fleiri fjárfesta inn til að hjálpa okkur með næsta vaxtarskeið munum við sækjast bæði eftir fjármagni og þekkingu.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK