4 milljónir ferðuðust með Icelandair

Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2017. Þeir voru alls 4 milljónir og fjölgaði um 10% frá fyrra ári.

Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að sætanýting ársins hafi numið 82,5% og aukist um 0,3 prósentustig samanborið við árið 2016. Heildarfjöldi farþega Air Iceland Connect var 349 þúsund og jókst um 7% á milli ára. Þá var herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2017 81,2% samanborið við 81,5% árið 2016. 

Í desember flutti Icelandair 235 þúsund farþega og voru þeir 7% fleiri en í desember árið 2016. Framboðsaukning á milli ára nam 10% og sætanýting var 76,5% samanborið við 77,2% árinu á undan. 

Farþegar Air Iceland Connect í desember voru 23 þúsund og fjölgaði um 13% á milli ára og herbergjanýting á hótelum félagsins var 68,2% samanborið við 67,9% í desember í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK