Tekjur Marels yfir 1 milljarður evra

Síðasta ár var gott hjá Marel.
Síðasta ár var gott hjá Marel. mbl.is/Ómar

Tekjur fyrirtækisins Marels námu yfir einum milljarði evra á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu um afkomu þess árið 2017.

Þar er einnig greint frá afkomunni á fjórða ársfjórðungi síðasta árs þar sem tekjur námu 295 milljónum evra.

Pantanir á árinu 2017 námu 1.144 milljónum evra og tekjurnar 1.038 milljónum evra.

Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 236 milljónum evra á árinu.

Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var x1,9 í árslok samanborið við x2,3 í árslok 2016, sem er í samræmi við markmið félagsins um fjármagnsskipan að halda skuldahlutfalli milli x2-3, að því er segir í tilkynningunni.

Þar er nefnt að árið 2017 keypti Marel eigin bréf að andvirði 63,4 milljónir evra og gekk frá kaupum á Sulmaq fyrir 26 milljónir evra.

Hagnaður á hlut fyrir síðastliðið ár var 13,70 evrusent.

Stjórn Marel leggur til að hluthafar fái greiddan arð fyrir rekstrarárið 2017 sem nemur 4,19 evrusentum á hlut. Það nemur um 30% af hagnaði rekstrarársins 2017 miðað við útistandandi hluti í árslok.

Stjórn Marels hefur einnig veitt stjórnendum félagsins heimild til að kaupa eigin bréf félagsins fyrir allt að nafnvirði 20 milljóna hluta.

Möguleiki á skráningu í erlenda kauphöll

„Frá því Marel var skráð í íslenskri kauphöll árið 1992 hefur félagið, með góðum stuðningi hluthafa, vaxið að meðaltali rúmlega 20% á ári og skapað mikil verðmæti. Á grundvelli metnaðarfullrar stefnu félagsins og áforma um framtíðarvöxt mun Marel kanna möguleika á skráningu félagsins í kauphöll erlendis. Mun félagið leita liðsinnis óháðra alþjóðlegra ráðgjafa við þá vinnu og greiningu á helstu skráningarkostum,“ segir í tilkynningunni.

18% tekjuaukning

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, segir að fjórði árshluti hafi verið góður endir á sterku rekstrarári.

„Pantanir hækkuðu um 13% á milli ára og námu 1.144 milljónum evra yfir árið. Okkar starf snýr að því að umbylta matvælaframleiðslu. Síðustu ár hefur Marel einnig tekið miklum framförum. Við höfum forgangsraðað fjárfestingum og bætt ferla til að tryggja viðskiptavinum okkar hágæða heildarlausnir á réttum tíma. Til að mæta miklum vexti í pöntunum höfum við fjölgað starfsfólki, en í dag starfa hjá Marel um 5.400 manns í yfir 30 löndum,“ segir Árni Oddur í tilkynningunni.

„Samhentu starfsfólki okkar tókst að skila 295 milljónum evra í tekjur á fjórða ársfjórðungi 2017, sem er nýtt met og aukning um 18% miðað við sama tímabil í fyrra. Pantanir og tekjur hafa vaxið hraðar en rekstrarkostnaður sem skilar félaginu góðri rekstrarniðurstöðu. Heildartekjur Marel árið 2017 námu yfir einum milljarði evra og 15% í EBIT. Í ljósi góðrar rekstrarniðurstöðu og sterkrar pantanabókar gerir félagið ráð fyrir góðum innri vexti árið 2018.

Nýsköpun og markaðssókn styður við áframhaldandi innri vöxt og verðmætasköpun. Félagið hyggst vaxa enn frekar með yfirtökum og öflugu samstarfi við leiðandi framleiðslu- og tæknifyrirtæki. Í samvinnu við viðskiptavini erum við að umbylta matvælavinnslu á heimsvísu.“

Fram kemur að Marel geri ráð fyrir góðum innri vexti á þessu ári í ljósi góðrar rekstrarniðurstöðu og sterkrar pantanabókar.

Fyrirtækið stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK