Aldrei hafa fleiri fasteignasalar útskrifast en á föstudaginn, en 77 kandídatar úr námi til löggildingar fasteigna- og skipasala útskrifuðust frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Úr leiðsögunámi á háskólastigi útskrifuðust 33 kandídatar, að því er fram kemur í Morgunbaðinu í dag.
Hátíðarræðumaður var Kjartan Hallgeirsson, formaður Félags fasteignasala. Hann talaði um mikilvægi nýrra laga sem krefjast löggildingar allra sem sjá um sölu fasteigna enda væru fasteignakaup stærstu kaup flestra á lífsleiðinni.