Icewear tekur við rekstri Vitans

Frá vinstri: Aðalsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Icewear, Pétur Ólasson, hafnarstjóri Hafnarsamlags …
Frá vinstri: Aðalsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Icewear, Pétur Ólasson, hafnarstjóri Hafnarsamlags Norðurlands og Friðrik Þór Stefánsson rekstrarstjóri verslana Icewear við undirritun samningsins á Akureyri. Ljósmynd/Aðsend

Icewear og Hafnarsamlag Norðurlands hafa gert fimm ára samning um rekstur og umsjón Vitans, þjónustumiðstöðvar fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem hafa viðkomu á Akureyri.

Icewear mun einnig þjónusta ferðaþjónustufyrirtæki, bílaleigur, rútufyrirtæki og önnur ferðaþjónustufyrirtæki um sölu á ferðum og þjónustu til farþega á staðnum. Nýting þjónustuhússins utan ferðatíma skemmtiferðaskipa verður skipulögð í samstarfi við hafnaryfirvöld, en til greina kemur að hafa verslun eða aðra þjónustu í húsinu sem hentar vel yfir vetrartímann.

Í fréttatilkynningu um samninginn segir að mikil aukning hafi verið í heimsóknum skemmtiferðaskipa til landsins og að áætlaður fjöldi skipa sem hafa viðkomu á Akureyri sé yfir 60. Munu mörg þeirra leggjast oftar en einu sinni að bryggju yfir sumarið. 

Fyrir rekur Icewear þjónustumiðstöðina á Skarfabakka í Reykjavík og mun vöruúrval Vitans verða sambærilegt því sem þar er boðið upp á, til dæmis útivistarfatnaður, íslenskar ullarvörur og mikið úrval af minjagripum. Einnig verður í boði mismunandi íslensk matvara, handverk og aðrar vörur sem keyptar eru af heildsölum eða handverksfólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK