Fyrsta flugi Icelandair til Cleveland fagnað

Myndin var tekin á Cleveland flugvelli í gærkvöldi þegar fyrsta …
Myndin var tekin á Cleveland flugvelli í gærkvöldi þegar fyrsta fluginu var fagnað, m.a. með tónlistarflutningi Lay Low og hátíðartertu fyrir farþega og aðra gesti. Það er Inga Lára Gylfadóttir flugstjóri sem mundar tertuspaðann. Flogið var á nýrri Boeing 737-MAX vél Icelandair, Látrabjargi. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta flug Icelandair frá Cleveland lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun eftir um sex klukkustunda langa ferð, að því er segir í tilkynningu frá Icelandair.

Cleveland er ein fimm nýrra borga í Norður-Ameríku sem Icelandair bætir við leiðakerfi sitt nú í vor, en hinar eru Baltimore, Kansas City, Dallas og San Francisco. Alls flýgur Icelandair til 23 borga í Norður-Ameríku í ár.

Cleveland í Ohio stendur við eitt af stóru vötnunum svokölluðu í Bandaríkjunum, Lake Erie, og er þekkt iðnaðarborg með um 2,2 milljónir íbúa. Borgin er einnig kunn fyrir kraftmikið lista- og íþróttalíf, en þar er meðal annars hið þekkta safn Rock and Roll Hall of Fame Museum. Körfuboltalið borgarinnar, Cavaliers, þekkja flestir áhugamenn um körfuknattleik, en með því leikur ein skærasta stjarna NBA, Lebron James.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK