Íslensk jurtamjólk í búðir

Nú er í fyrsta skipti hægt að fá ferska jurtamjólk …
Nú er í fyrsta skipti hægt að fá ferska jurtamjólk á Íslandi. mbl.is/Arnþór Birkisson

Mikil eftirspurn er eftir nýrri íslenskri jurtamjólk sem kom í búðir síðastliðinn föstudag. Fyrsta upplag seldist upp á mánudag en ný sending er á leið í verslanir.

„Við höfum orðið þess áskynja að það sé ákveðin viðhorfsbreyting hjá fólki í dag sem snýr að því að minnka neyslu á afurðum úr dýraríkinu og sáum þarna ákveðið gat á markaðnum sem okkur langaði að fylla í,“ segir Guðni Þór Sigurjónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Býlið okkar, sem framleiðir jurtamjólkina. Fyrirtækið hefur sett tvær tegundir af mjólk á markaðinn undir nafninu Heiða; möndlumjólk og haframjólk.

„Við erum síðan með tvenns konar útgáfu af hvorri tegund, annars vegar með sætu og hins vegar ekki með sætu. Svo eigum við bara eftir að sjá hvernig markaðurinn tekur þessum vörum.“ Jurtamjólkin er ekki einungis fyrsta íslenska jurtamjólkin heldur er með tilkomu hennar í fyrsta skipti hægt að fá ferska jurtamjólk á Íslandi en Guðni segir jurtamjólkina hafa minna kolefnisspor og betra bragð en þá jurtamjólk sem fæst hérlendis og er flutt langan veg. „Þar sem við flytjum bara inn þykkni af höfrum og möndlum en notum íslenskt vatn hefur Heiða minna kolefnisspor en önnur jurtamjólk á markaðnum.“

Guðni segir að fleiri afurðir úr höfrum og möndlum gætu verið væntanlegar. „Án þess að lofa neinu erum við á fullu í þróun á alls kyns öðrum tegundum og við hlökkum gríðarlega til að kynna þær til leiks.“ 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK