Vaxtarsproti ársins jók veltu um 211% milli ára

Viðurkenningahafar ásamt ráðherra og fulltrúum Samtaka iðnaðarins, talið frá vinstri: …
Viðurkenningahafar ásamt ráðherra og fulltrúum Samtaka iðnaðarins, talið frá vinstri: Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI, Atli Þorbjörnsson, yfirmaður tæknimála hjá Gangverki, Björn Örvar, einn af stofnendum Orf-Líftækni, Smári Rúnar Þorvaldsson, stjórnarmaður hjá Kaptio, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Arnar Laufdal Ólafsson, forstjóri Kaptio, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Frosti Ólafsson, forstjóri Orf-Líftækni, Baldur Tumi Baldursson, sviðsstjóri klínískra rannsókna hjá Kerecis, og Guðmundur Magnús Hermannsson, yfirmaður fjármála og framleiðslu hjá Kerecis. Ljósmynd/Aðsend

Sprotafyrirtækið Kaptio hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Fyrirtækið selur bókunarkerfi fyrir ferðaiðnaðinn og eru viðskiptavinir þess ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur með starfsstöðvar á Íslandi, Bretlandi, Kanada, Bandaríkjunum, Kína og Ástralíu. Tekjur félagsins jukust um 211% milli áranna 2016 og 2017 og fóru úr 71 milljón króna í 221 milljón króna.

Vægi erlendra tekna hefur sífellt orðið meira og í dag eru erlendar tekjur tæplega 85% af heildartekjum. Starfsmönnum fjölgaði á sama tíma úr 18 í 32. Félagið hóf störf árið 2012 og í janúar 2014 byrjaði fyrsti ferðaskipuleggjandinn að nota fyrstu útgáfuna af hugbúnaðarlausn Kaptio.

Stofnendur Kaptio eru þeir Arnar Laufdal Ólafsson og Ragnar Ægir Fjölnisson. Félagið hefur fengið öfluga fjárfesta til liðs við sig en meðal þeirra eru Frumtak Ventures, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Kaskur fjárfestingafélag og Capital A Partners sem er bandarískur fjárfestingasjóður.

Þrjú önnur sprotafyrirtæki, Kerecis, Gangverk og ORF-Líftækni, hlutu einnig viðurkenningar fyrir vöxt í veltu en Kaptio, sem sýndi mestan hlutfallslegan vöxt auk þess að uppfylla önnur viðmið dómnefndar, fær nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 12. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar. Í dómnefnd voru Ari Jónsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannsóknarmiðstöð Íslands, Erlendur Steinn Guðnason fyrir Samtök sprotafyrirtækja og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins. Það var ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem afhenti Vaxtarsprotann í morgun í Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann:

  • 2007 Marorka
  • 2008 Mentor
  • 2009 Mentor
  • 2010 Nox Medical
  • 2011 Handpoint
  • 2012 Valka
  • 2013 Meniga
  • 2014 DataMarket
  • 2015 Kvikna
  • 2016 Eimverk
  • 2017 Kerecis
  • 2018 Kaptio

 Eftirfarandi fyrirtæki hafa fengið viðurkenningu fyrir góðan vöxt:

  • 2007 Gagarín, Stiki, Stjörnu-Oddi
  • 2008 Betware, Valka, Kine
  • 2009 Naust Marine, Gogogic, Saga Medica
  • 2010 Valka, Hafmynd, Menn og Mýs
  • 2011 Marorka, Trackwell, Gogogic
  • 2012 Kvikna, ORF Líftækni, Thorice
  • 2013 Controlant, Nox Medical, Lceconsult
  • 2014 Valka, Nox Medical, Skema
  • 2015 Kvikna, Valka
  • 2016 Lauf Forks, Orf Líftækni, Valka
  • 2017 TeqHire, Valka, Kvikna
  • 2018 Kerecis, Gangverk, Orf-Líftækni
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK