Úr fluginu í uppbyggingu

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, hefur sagt starfi sínu lausu og …
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, hefur sagt starfi sínu lausu og ætlar hefja störf við uppbyggingu á nýjum miðbæ á Selfossi. mbl.is/Styrmir

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, hefur sagt starfi sínu lausu en hann hefur gegnt því undanfarin 18 ár. Á nýju ári mun Guðjón hefja störf við uppbyggingu á nýjum miðbæ á Selfossi.

Starf upplýsingafulltrúa Icelandair verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum og eflaust verða margir sem sækja um þetta spennandi starf.

„Þessi breyting hefur staðið til nú í nokkurn tíma. Ég er ekki alveg farinn, mun verða hér eitthvað áfram og nýrri manneskju til halds og trausts fram eftir vetri áður en leiðir skilja milli mín og Icelandair,“ segir Guðjón í samtali við Morgunblaðið.

„Ég er Selfyssingur að uppruna og hef undanfarin misseri verið þátttakandi í þróun hugmynda um nýjan miðbæ þar ásamt fleirum og það verkefni er nú komið á fullt eftir að íbúar samþykktu það í kosningu sem haldin var í sumar. Þetta er stórt og geysilega spennandi verkefni og ég ætla nú í það af fullum krafti. Mér rennur eiginlega blóðið til skyldunnar eftir það traust sem Selfyssingar sýndu okkur í kosningunum.

Við höfum beðið eftir leyfi frá bæjarfélaginu til að geta hafið framkvæmdir, og vonandi getum við byrjað að grafa á næstu dögum.“

Sigtún þróunarfélag er með áform um að byggja upp í miðbæ Selfoss um 35 hús í klassískum íslenskum stíl, þétt saman með verslunum, íbúðum, skrifstofum, veitingahúsum, sýningum, hóteli og gististöðum og fleiru. „Við Leó Árnason, sem er Selfyssingur eins og ég, höfum þróað þessa hugmynd saman, en með aðstoð fjölmargra annarra,“ segir Guðjón. Íbúðakosning um nýtt skipulag fór fram 18. ágúst s.l. og voru 58,5% hlynnt nýju aðalskipulagi og 39,1% andvíg.

Sigtún þróunarfélag er með stórhuga áform um að byggja upp …
Sigtún þróunarfélag er með stórhuga áform um að byggja upp í miðbæ Selfoss um 35 hús í klassískum íslenskum stíl. Guðjón Arngrímsson mun starfa við þetta verkefni næstu árin. Tölvumynd/Batteríið Arkitektar

Selfoss verði enn betri bær

„Það er framundan mikið uppbyggingarstarf með heimamönnum og íslensku og erlendu fagfólki sem snýr að t.d. arkítekúr og sögu, ásamt stefnumótunar-, markaðs- og menningarstarfi. Við ætlum að reyna að gera þetta eins vel og við getum og gera Selfoss á næstu árum að enn betri bæ en í dag fyrir heimamenn og í leiðinni að spennandi áfangastað fyrir íslenska og erlenda gesti. Að þessu stendur frábær hópur sem ég hlakka til að vinna með,“ segir Guðjón.

Guðjón er í hópi þeirra sem hvað lengst hafa verið í starfi upplýsingafulltrúa hérlendis og eflaust sá sem þjóðin hefur oftast heyrt í fréttum.

Guðjón var búinn að vinna í yfir 20 ár á fjölmiðlum, í auglýsingageiranum og almannatengslum, m.a. á Vísi, Helgarpóstinum, Morgunblaðinu og Stöð 2, áður en hann hóf störf hjá Flugleiðum, eins og fyrirtækið hét þá, í september árið 2000. Hann telur óvírætt að fjölmiðlareynslan hafi komið sér vel í starfi upplýsingafulltrúa, skilningur á eðli og þörfum fjölmiðla og fjölmiðlafólks sé nauðsynlegur fyrir þetta starf.

„Í þau 18 ár sem ég hef verið hjá Icelandair hefur félagið verið í fréttum meira og minna á hverjum einasta degi. Það er bara eðlilegt vegna umfangs og eðlis starfseminnar og hversu djúpar rætur það á í samfélaginu. Það eru smáfréttir og stórfréttir, en þetta er orðin löng vakt.“

Hann kveðst hafa unnið náið með öllum forstjórum Icelandair, áður Flugleiða, allan þennan tíma og samstarfið hafi gengið vel.

Starfsemi Icelandair hefur vaxið ótrúlega mikið þau 18 ár sem …
Starfsemi Icelandair hefur vaxið ótrúlega mikið þau 18 ár sem Guðjón hefur verið talsmaður þess og áfrangastöðum fjölgar ár hvert. mbl.is/Sigurður Bogi

Miklir umbrotatímar

„Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og aðeins hluti þess snýr út á við, þ.e. að vera talsmaður félagsins gagnvart fjölmiðlum. Hluti þess snýr að þátttöku í almennri stjórnun félagsins sem mér hefur þótt heillandi, enda starfar fyrirtækið í alþjóðlegu umhverfi og margt á dagana drifið undanfarin 18 ár, t.d. hryðjuverkin 9/11 2001, hamagangurinn fyrir hrun, hrunið sjálft, Eyjafjallajökulsgosið og svo vöxturinn núna undanfarin ár og uppbygging ferðaþjónustunnar, svo eitthvað sé nefnt. Það er gaman að hafa verið með í ákvarðanatöku um helstu þætti í flugi- og ferðaþjónustu á þessum umbrotatíma, sem hefur valdið grundvallarbreytingum í samfélaginu, og mikill heiður að hafa verið treyst fyrir því svona lengi að tala fyrir hönd þess öfluga liðs sem myndar Icelandair.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK