Bókunarstaðan betri á Íslandsferðum

Erlendir seljendur ferða til Íslands segja bókunarstöðu ársins betri en á sama tíma fyrir ári auk þess sem þeir eru bjartsýnni á bókanir fyrir komandi vetrartímabili.

Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Íslandsstofa lagði fyrir í júní, að því er segir í tilkynningu. Fram kemur að 74% þeirra vænta svipaðrar eða betri bókunarstöðu en síðasta vetur sem eru 17% fleiri en þegar sambærileg könnun var gerð fyrir ári. Hlutfallið er nokkurn veginn á pari við það sem það var í könnuninni fyrir tveimur árum.

Þátttakendur frá N-Ameríku voru þeir einu sem greindu frá lakari væntingum til komandi vetrartímabils en í fyrri könnunum. Í ljósi gríðarlegs vaxtar á þeim markaði á undanförnum árum er þó ekki óeðlilegt að dregið hafi úr væntingum um vöxt. Á hinn bóginn eru umskipti meðal breskra söluaðila ánægjuleg en væntingar þeirra til vetrartímabilsins mældust langt umfram það sem þær voru í fyrri könnunum, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsstofu.

„Meðmælatryggð erlendra söluaðila gagnvart Íslandi sem áfangastað mældist mikil í könnuninni, eða 54 stig. Meðmælatryggð endurspeglar hve líklegt fólk er til að mæla með því að ferðast til Íslands og mæling yfir 50 stig telst mjög góð. Á heildina litið hefur meðmælatryggðin vaxið frá fyrri könnunum og á flestum markaðssvæðum. Öryggi og vinsældir áfangastaðarins eru þeir þættir sem langflestir þátttakendur líta jákvæðum augum í þróun ferðaþjónustunnar en verðlag er sá þáttur sem mælist mest neikvæðni til. Hlutfallslega voru þó færri sem nefndu verðlag sem neikvæðan þátt en í fyrri könnunum; í þessari könnun var hlutfallið 77% á móti 89% þátttakenda þegar það fór hæst fyrir tveimur árum.“

Samkvæmt svörum erlendra söluaðila í könnuninni má sjá að í heild virðist fall flugfélagsins WOW air hafa haft takmörkuð áhrif á fyrirtæki þeirra. Þannig sögðu 47% að fall WOW air hefði alls ekki haft áhrif og 29% að áhrifin væru lítil. Áhrifin voru þó mismikil eftir markaðssvæðum, mest meðal þátttakenda frá Bretlandi og Mið- og Suður-Evrópu en minnst meðal þátttakenda frá Norðurlöndunum og N-Ameríku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK