Íslandspóstur setur Samskipti í sölu

mbl.is/Hari

Söluferli á Samskiptum ehf. er hafið en Íslandspóstur auglýsti allt hlutafé í dótturfélagi sínu til sölu í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Samskipti starfa á prentmarkaði og hafa gert það frá árinu 1978. Salan á félaginu fer fram í samstarfi við Deloitte ehf. sem er ráðgjafi Íslandspósts í söluferlinu.

„Íslandspóstur stendur á tímamótum og nauðsynlegt er að líta á alla hluta rekstrarins og endurmeta hvernig fyrirtækið á að vera byggt upp til framtíðar. Undanfarið hafa stjórnendur og stjórn félagsins unnið saman að gerð áætlunar til þess að umbreyta rekstrinum og hefur meðal annars verið gripið til víðtækra hagræðingaraðgerða og endurskipulagningar. Salan á Samskiptum er hluti af þessu breytingaferli en okkar helstu markmið eru að stórbæta þjónustu til viðskiptavina, snúa rekstri Íslandspósts úr tapi í hagnað og einbeita okkur að kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Prentsmiðjurekstur er ekki hluti af þeirri kjarnastarfsemi og því var ákveðið að selja félagið. Við vonumst til að söluferlið gangi hratt og örugglega fyrir sig enda eru Samskipti þekkt og öflugt fyrirtæki á sínu sviði og sem slíkt mjög áhugaverður fjárfestingarkostur,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK