Anna og Ragnheiður nýjar í framkvæmdastjórn Isavia

Anna Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri, þjónustu- og rekstrarsviðs Isavia og Ragnheiður …
Anna Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri, þjónustu- og rekstrarsviðs Isavia og Ragnheiður Hauksdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Ljósmynd/Aðsend

Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir til starfa hjá Isavia, þær Anna Björk Bjarnadóttir, sem hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra þjónustu- og rekstrarsviðs, og Ragnheiður Hauksdóttir sem hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Þær taka báðar sæti í framkvæmdastjórn Isavia ohf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Anna Björk var síðast framkvæmdastjóri ráðgjafar og sérlausna hjá Advania. Áður starfaði hún í átta ár hjá Símanum, þar af sat hún fimm ár í framkvæmdastjórn. Þá hefur hún einnig leitt ráðgjafarfyrirtækið Expectus og gegndi þar hlutverki framkvæmdastjóra. Anna Björk hefur einnig setið í stjórnum fjölmargra félaga og samtaka þar á meðal hjá Festu, Sensa og Viðskiptaráði Íslands.

Anna Björk tekur við nýju þjónustu- og rekstrarsviði Isavia á Keflavíkurflugvelli sem annast daglegan rekstur Keflavíkurflugvallar. Anna Björk hefur störf mánudaginn 10. febrúar.

Ragnheiður hefur yfir tíu ára starfsreynslu sem stjórnandi hjá Vodafone, síðast sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs. Ragnheiður hefur einnig setið í stjórn Vertonets, hagsmunasamtaka kvenna í upplýsingatækni, og í fagráði Tækniþróunarsjóðs. Ragnheiður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og Copenhagen Business School þar sem sérsvið hennar var markaðsfræði og alþjóðaviðskipti.

Ragnheiður tekur við nýju stoðsviði Isavia sem er stofnað til að annast stafræna þróun og rekstur upplýsingatækni hjá félaginu. Það fer með ábyrgð á rekstri upplýsingatækni hjá Isavia, annast stafræna þróun og nýsköpun og leiðir stefnumörkun félagsins í stafrænni umbreytingu. Ragnheiður hóf störf miðvikudaginn 5. febrúar síðastliðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK