Ásdís Eir nýr formaður Mannauðs

Ásdís Eir Símonardóttir var í gær kjörin nýr formaður Mannauðs.
Ásdís Eir Símonardóttir var í gær kjörin nýr formaður Mannauðs. Ljósmynd/Aðsend

Ásdís Eir Símonardóttir var kjörin formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi, á aðalfundi félagsins í gær. Hún tekur við embættinu  af Brynjari Má Brynjólfssyni, mannauðsstjóra RB, sem verið hefur formaður félagsins undanfarin tvö ár en hann gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Ásdís Eir starfar í dag sem sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Orkuveitu Reykjavíkur en hefur víðtæka reynslu á sviði mannauðsmála. Hún er með MS-gráðu í vinnusálfræði frá Háskóla Íslands og BS-gráðu í sálfræði frá sama skóla.

Ásdís Eir hóf störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur árið 2016 og hefur frá þeim tíma sinnt mannauðsráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda OR og dótturfélaganna Orku náttúrunnar og CarbFix. Áður starfaði Ásdís sem sérfræðingur á mannauðssviði Tollstjóra.

Mannauður er félag mannauðsfólks á Íslandi sem telur nær 400 félagsmenn og fer ört fjölgandi. Markmið og hlutverk félagsins er að efla fagmennsku mannauðsstjórnunar í þágu íslensks atvinnulífs með virkri þátttöku í umræðu um mannauðsmál. Uppruna félagsins má rekja til klúbbs starfsmannastjóra sem stofnaður var á tíunda áratugnum en þróaðist síðan yfir í félag fyrir alla mannauðsstjóra og síðar alls mannauðsfólks og ráðgjafa sem starfa við mannauðsmál á Íslandi.

„Félagið hefur eflst og stækkað um meira en helming á síðustu 3 árum og má meðal annars þakka það öflugu starfi stjórnar hverju sinni. Mannauðsfólk út um allan heim stendur frammi fyrir gríðarlega miklum áskorunum sem fylgja bæði tækniframförum sem og kynslóðaskiptum á vinnumarkaði. Það er frábært að fá Ásdísi Eir sem formann félagsins á þessum tímum, hún þekkir félagið vel og er öflugur kandídat til að leiða það inn í nýja tíma“ segir Sigrún Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs,“ í tilkynningu.

Á aðalfundi félagsins var einnig kosin ný stjórn en hana skipa auk Ásdísar:

  • Adriana K. Pétursdóttir, leiðtogi í starfsmannaþjónustu Rio Tinto á Íslandi
  • Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar Fræðsluseturs
  • Hróar Hugosson, mannauðsstjóri Matís
  • Íris Sigtryggsdóttir, fræðslustjóri Advania
  • Margrét Jónsdóttir, mannauðsstjóri Acranum Fjallaleiðsögumanna
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK