Icelandair tekur aðra dýfu

Gengi Icelandair heldur áfram að lækka í Kauphöll Íslands.
Gengi Icelandair heldur áfram að lækka í Kauphöll Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gengi hlutabréfa Icelandair heldur áfram að lækka í verði við opnun markaða í dag. Alls nemur lækkunin það sem af er degi ríflega 6,6% og stendur gengið nú í 7,22 kr. Samtals hlaupa viðskipti með bréf félagsins á 62 milljónum króna. 

Lækkun dagsins kemur í kjölfar skarprar lækkunar í gær þar sem gengi hlutabréfa flugfélagsins lækkaði um tæplega 9%. Talið er rekja megi lækkunina til útbreiðslu og hugsanlegra áhrifa kórónuveirunnar, en gríðarlegar lækkanir voru á mörkuðum um heim allan í gær. 

Það sem af er ári hefur gengi hlutabréfa Icelandair hækkað um ríflega 2% að teknu tilliti til lækkunar dagsins. Fyrir helgi stóð gengi bréfanna í 8,47kr. og hefur því lækkað umtalsvert undanfarna tvo daga. 

Efnisorð: Icelandair
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK