Kvika vill festa kaup á Netgíró

Kvika banki.
Kvika banki.

Kvika hefur undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 80% hlut í Netgíró en fyrir á bankinn um 20% hlut í félaginu og verður því eini eigandi þess ef kaupin ná fram að ganga. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar en viljayfirlýsingin er gerð með fyrirvörum um samþykki stjórnar Kviku, niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki eftirlitsaðila. Áætlað er að ganga frá kaupsamningi innan þriggja mánaða.

Fram kemur í tilkynningunni að kaup á Netgíró séu í samræmi við stefnu Kviku banka um að nýta tæknilausinr til þess að nútímavæða fjármálaþjónustu. Að Netgíró hafi lagt áherslu á að þróa lánshæfismöt ásamt því að bjóða upp á raðgreiðslur með einföldum hætti. 

„Kvika hefur átt farsælt samstarf við Netgíró á undanförnum árum, meðal annars varðandi fjármögnun á kröfusafni félagsins. Kaupin gera bankanum kleift að efla enn frekar samstarfið við Netgíró sem leiðir til aukinnar skilvirkni og hagræðingar hjá báðum aðilum. Netgíró er nú á tæplega 3.000 sölustöðum á landinu og yfir 68.000 einstaklingar eru í viðskiptum við fyrirtækið,“ segir m.a. í tilkynningunni.

Fram kemur að kaupin hafi ekki áhrif á afkomuspá bankans fyrir árið í ár en að stefnt sé að því að kaupin hafi jákvæð áhrif á afkomu bankans til lengri tíma.

Að sögn Marinós Arnar Tryggvasonar, forstjóra Kviku, sér bankinn tækifæri í Netgíró til framtíðar enda hafi félagið háa markaðshlutdeild. „[H]já því starfa öflugir og reynslumiklir starfsmenn. Væntanleg kaup bankans á Netgíró falla vel að stefnu bankans um þróun fjármálaþjónstu byggða á hagkvæmum tæknilausnum. Með sterka innviði og fjárhagslegan styrk bankans á bakvið sig teljum við félagið vera í góðri stöðu til að sækja fram á næstu misserum,“ var haft eftir Marinó í tilkynningu.

Skorri Rafn Rafnsson, stjórnarformaður Alva Holding ehf., móðurfyrirtækis Netgíró, segir viljayfirlýsinguna gleðiefni.

„Viljayfirlýsingin er mikið gleðiefni og um leið staðfesting á því sem við hjá Netgíró höfum unnið að frá stofnun félagsins. Afburða starfsfólk, skýr framtíðarsýn og mikil vinna hefur skapað fyrirtækinu þann sess sem það nú skipar. Við vitum að framundan eru spennandi tímar og mikil tækifæri til vaxtar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK