6,3 milljarða breyting

Fluttar voru út vörur fyrir 61,4 milljarða króna í október 2020 og inn fyrir 68,6 milljarða króna fob (74,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,1 milljarð króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 800 milljónir króna í október 2019 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruviðskiptajöfnuðurinn í október 2020 var því 6,3 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn þennan mánuð. Vöruskiptajöfnuður tímabilið janúar-október 2020 var óhagstæður um 89,8 milljarða eða 9,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tímabili árið áður.

Verðmæti útflutnings dregst saman

Verðmæti vöruútflutnings var 510,6 milljarðar króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2020 og lækkaði um 36,2 milljarða króna miðað við sama tímabil árið áður eða 6,6% á gengi hvors árs.1 Munar þar mestu um viðskipti með skip og flugvélar í janúar 2019 og minna verðmæti í útflutningi iðnaðarvara. Iðnaðarvörur voru 48,2% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 4,8% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,9% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 0,1% á milli ára.

Verðmæti vöruinnflutnings lækkar um 45,6 milljarða

Verðmæti vöruinnflutnings var 600,4 milljarðar á fyrstu tíu mánuðum ársins 2020 og lækkaði um 45,6 milljarða króna miðað við sama tímabil fyrir ári eða 7,1% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í öllum flokkum nema neysluvörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK