Kynna nýja rétti sem allir kosta 128 kr.

Skyndibitarisinn Burger King.
Skyndibitarisinn Burger King. AFP

Hamborgarakeðjan Burger King mun á morgun taka í gagnið nýjan matseðil. Einungis fjórir réttir verða á nýjum matseðli, en allir munu réttirnir kosta einn bandaríkjadal, eða um 128 kr. Umræddur matseðill kemur ekki í staðinn fyrir hinn hefðbundna Burger King-matseðil.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu eru réttirnir sem um ræðir beikonborgari, kjúklingasamloka, franskar og gos að eigin vali. Eins og fyrr segir kosta réttirnir einn bandaríkjadal.

Með nýjum matseðli vill Burger King koma til móts við þá sem eiga erfitt sökum faraldursins sem nú geisar. Réttirnir verða frá og með morgundeginum í boði á öllum stöðum fyrirtækisins, en þeim hefur flestum verið haldið opnum.

Um 90% af veitingastöðum Burger King eru opin þrátt fyrir mikla fjölgun smita, sérstaklega í Bandaríkjunum. Vonir eru þó bundnar við að bólusetning, sem nú er í fullum gangi í Bandaríkjunum, verði til þess að ástandið lagist fljótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK