Útflutningur á lækningavörum og lyfjum jókst um 66,6%

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Fluttar voru út vörur fyrir 61,5 milljarða króna í mars 2021 og inn fyrir 82,5 milljarða cif (76,4 milljarða króna fob). Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 21 milljarð króna. Þessar tölur eru í fullu samræmi við bráðbirgðatölur Hagstofu Íslands sem voru birtar 12. apríl.

Vöruviðskiptajöfnuður óhagstæður um 151,2 milljarða

Í mars 2020 voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 19,4 milljarða króna. Vöruviðskiptajöfnuðurinn í mars 2021 var því 1,5 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 151,2 milljarða króna sem er 43,3 milljörðum hagstæðari jöfnuður, eða 22,3%, en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti vöruútflutnings í mars 2021 jókst um 5 milljarða króna, eða um 8,8%, frá mars 2020, úr 56,5 milljörðum króna í 61,5 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 483,7 milljónir króna, eða um 1,8% samanborið við mars 2020. Þar af jókst útflutningur á lækningavörum og lyfjum um 66,6% sem er 4% af öllum iðnaðarvörum eða 1,8% af heildinni. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 1,7 milljarða (6,7%) og landbúnaðar um 82,9% á milli ára.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2020 til mars 2021, var 634,6 milljarðar króna og hækkaði um 17,2 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 2,8% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 48,2% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaða og var verðmæti þeirra 1,1% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 42,9% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 4,3% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 19,9% á sama tímabili.

Verðmæti vöruinnflutnings nam 82,5 milljörðum króna cif í mars 2021 samanborið við 76 milljarða í mars 2020. Verðmæti neysluvara jókst um 42,5% í mars 2021 frá mars 2020. Verðmæti flutningstækja minnkaði hins vegar um 36,6% samanborið við mars 2020.

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 785,8 milljarðar króna og lækkaði um 26,1 milljarð miðað við tólf mánuði þar á undan eða 3,2% á gengi hvors árs fyrir sig. Mestu munaði um samdrátt í innflutningi á eldsneyti að því er segir á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK