Stofna stærsta vísisjóð á Íslandi

Helga Valfells, Hekla Arnardóttir og Jenný Ruth Hrafnsdóttir.
Helga Valfells, Hekla Arnardóttir og Jenný Ruth Hrafnsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Íslenski sprota- og vaxtasjóðurinn Crowberry Capital hefur fjármagnað nýjan vísisjóð, Crowberry II, sem er um 11,5 milljarða króna sjóður sem er jafnframt stærsti vísisjóður sem settur hefur verið saman á Íslandi.

Hann hefur 10 ára líftíma og mun taka á móti frekari áskriftarloforðum fagfjárfesta á fyrsta starfsári, að því er kemur fram í tilkynningu.

Crowberry II fjárfestir í norrænum sprotafyrirtækjum í tæknigeiranum á fyrstu stigum fjármögnunar og mun vera með starfsstöðvar í Reykjavík og Kaupmannahöfn.

Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) leiddi fjármögnun sjóðsins en aðrir fjárfestar eru íslenskir lífeyrissjóðir og fagfjárfestar, þ.á m. Davíð Helgason, stofnandi Unity Technologies. Evrópski fjárfestingasjóðurinn er í eigu nokkurra evrópskra banka og er stærsti fagfjárfestir vísisjóða í Evrópu.

„Aðkoma EIF er staðfesting á því að hér á landi eru mikil tækifæri við uppbyggingu tæknifyrirtækja um leið og að staðfesta að þau vinnubrögð sem hafa verið þróuð hér við fjárfestingar séu eins og best gerist í Evrópu. Þessi beina erlenda fjárfesting mun hafa mikil áhrif á uppbyggingu tæknifyrirtækja og sköpun þekkingarstarfa á Íslandi til næstu 10 ára,” segir í tilkynningunni.

Stofnendur og meðeigendur Crowberry Capital eru þær Helga Valfells, Hekla Arnardóttir og Jenný Ruth Hrafnsdóttir sem hafa fjárfest í 15 tæknifyrirtækjum í gegnum fyrri sjóð Crowberry Capital, Crowberry I,  sem var 4 milljarða króna sjóður stofnaður árið 2017.

„Við erum þakklát fyrir það traust sem hluthafar Crowberry sýna okkur. Það er ánægjulegt að vinna í nýsköpun með íslenskum lífeyrissjóðum og einkafjárfestum sem hafa stutt okkur dyggilega síðan 2017. Nú erum við að bæta erlendum fagfjárfestum í hópinn. Það er mikill ávinningur af því að fá EIF sem virkan þátttakenda í íslenska vísisumhverfið. Í fyrsta lagi er það frábært fyrir íslenskt efnahagslíf að fá beina erlenda fjárfestingu. En auk þess er það viðurkenning fyrir íslenskt nýsköpunarumhverfi, Crowberry og hluthafa þess að hafa staðist þær ströngu kröfur sem EIF gerir til sinna fjárfestinga. EIF veitir Crowberry aðgang að sterku tengslaneti fjárfesta og fyrirtækja og aðgang að þeirra reynslu og þekkingu. Við hlökkum til að starfa með nýju hluthöfunum og munum vinna dyggilega að því skila þeim góðri ávöxtun,” segir Hekla í tilkynningunni.

Jenný bætir við: „Þegar Unity var stofnað árið 2004 af Davíði Helgasyni var vísifjárfesting vart í boði fyrir frumkvöðla tæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Unity fann fjárfesta í Bandaríkjunum og í dag er markaðsvirði fyrirtækisins rúmlega ellefu sinnum samanlagt markaðsvirði þeirra tveggja íslensku banka sem eru á markaði. Með því að bjóða upp á betri fjármögnun fyrir frumkvöðla á Norðurlöndunum, þá hættum við að vera áhorfendur og höfum tækifæri til að vera þátttakendur í svona vegferðum,” segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK