Hrefna Ösp nýr framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hún gegndi áður starfi framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum.

Í tilkynningu frá Creditinfo vegna ráðningarinnar er haft eftir Hrefnu Ösp að hún sé spennt að ganga til liðs við fyrirtækið. Fram undan séu „fjölmörg tækifæri til áframhaldandi vaxtar svo sem vegna opnara bankaumhverfis og aukinna krafna um þekkingu á viðskiptavinum og uppruna fjármagns“.

Brynja Baldursdóttir, sem hafði áður gegnt starfinu flutti sig til Greiðslumiðlunar Íslands fyrr á árinu þar sem hún tók við sem forstjóri. Anna Lára Sigurðardóttir, forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Creditinfo, hefur síðan þá verið staðgengill forstjóra.

Hrefna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með löggildingarpróf í verðbréfaviðskiptum. Hún lét af störfum hjá Landsbankanum í haust eftir að hafa verið þar frá árinu 2010. Áður starfaði Hrefna sem sjóðstjóri hjá Arev-verðbréfafyrirtæki frá árinu 2007. Þá starfaði hún sem forstöðumaður skráningarsviðs og sérfræðingur á því sviði hjá Kauphöll Íslands frá 1998-2006. Áður gegndi Hrefna starfi forstöðumanns einstaklingsþjónustu hjá Fjárvangi og var starfsmaður á peningamálasviði Seðlabanka Íslands.

Hrefna hefur sömuleiðis setið í stjórnum fjölda fyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis og er jafnframt einn stofnaðila IcelandSIF, óháðs vettvangs fyrir umræðu og fræðslu um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK