Norðurál Helguvík tekið til gjaldþrotaskipta

Framkvæmdir við álverið.
Framkvæmdir við álverið. mbl.is/Golli

Bú Norðuráls Helguvíkur ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness síðastliðinn fimmtudag, en félagið var í eigu Norðuráls.

Fyrirtækið átti að sjá um rekstur álvers í Helguvík en ekkert hefur orðið af honum. Í fyrra seldi það eignir til Samherja fiskeldis vegna fyrirhugaðrar landeldisstöðvar útgerðarfélagsins.

Í ársreikningi Norðuráls Helguvíkur ehf. fyrir síðasta ár kom fram að eigið fé var neikvætt um 14,5 milljarða kóna. Þá var tap félagsins í fyrra 837 milljónir og árið þar á undan 864 milljónir. 

Í Lögbirtingablaðinu er skorað á þá sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess að lýsa yfir kröfum sínum fyrir skiptastjóra innan tveggja mánaða. Þá verður haldinn skiptafundur þar sem fjallað verður um lýstar kröfur og ráðstöfun á eignum og réttindum búsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK