Elon Musk vill kaupa Twitter

Elon Musk, forstjóri Tesla, hefur gert tilboð í Twitter.
Elon Musk, forstjóri Tesla, hefur gert tilboð í Twitter. Samsett mynd

Elon Musk, forstjóri Tesla, hefur boðist til að kaupa Twitter. Hann segist vera rétta manneskja til að leysa úr læðingi „ótrúlega möguleika“ samfélagsmiðilsins. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Í óvæntri tilkynningu sagði Musk að hann myndi borga 54,20 dali á hlut fyrir Twitter.

Nýlega kom í ljós að Musk væri stærsti hluthafi Twitter eftir að hann eignaðist stóran hlut í fyrirtækinu. Hann sagði að ef tilboð hans yrði ekki samþykkt þyrfti hann að endurskoða stöðu sína sem hluthafa.

„Síðan ég gerðist hluthafi hef ég áttað mig á því að fyrirtækið mun hvorki dafna né þjóna samfélagslegri þörf í núverandi mynd. Twitter þarf að breytast sem einkafyrirtæki,“ sagði Musk og bætti við:

 „Twitter hefur ótrúlega möguleika og ég mun leysa þá úr læðingi.“

Fyrr í vikunni var Musk kærður fyrir kaupin í fyrirtækinu og sakaður um að hafa með ólögmætum hætti leynt því að hann æti hlut í samfélagsmiðlinum til að geta keypt fleiri hlutabréf fyrir lægri upphæð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK