Stærsta snyrtivöruverslun landsins nú á netinu

Um 18.000 vörunúmer eru í vefversluninni og munu fleiri bætast …
Um 18.000 vörunúmer eru í vefversluninni og munu fleiri bætast við á degi hverjum. Ljósmynd/Hagkaup

Hagkaup, sem löngum hefur starfrækt stærstu snyrtivöruverslun landsins í snyrtivörudeildum sínum, hefur opnað vefverslun þar sem nálgast má úrvalið úr snyrtivörudeildunum.

Í vefversluninni má finna mörg stærstu snyrtivörumerki heims. Um 18.000 vörunúmer eru í vefversluninni og munu fleiri bætast við á degi hverjum.

Fram kemur í upplýsingum á síðunni að pantanir séu afhentar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og degi síðar á landsbyggðinni.

Langþráður draumur

Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, segir að opnun snyrtivöruverslunarinnar sé langþráður draumur. 

Í vefversluninni má finna mörg stærstu snyrtivörumerki heims.
Í vefversluninni má finna mörg stærstu snyrtivörumerki heims. Ljósmynd/Hagkaup

„Við lögðum því mikinn metnað í smíði á nýju vefversluninni og vorum með hóp viðskiptavina með okkur í þróunarferlinu sem gáfu okkur verðmæta endurgjöf á verslunina,“ segir Sigurður. 

Þá bætir hann við að nú þegar sé um 92% af snyrtivöruframboði Hagkaups fáanlegt í nýju vefverslunina og stefnt sé að því að vera komin með allar vörur inn á næstu mánuðum.

Ánægjulegt að getað þjónustað landið allt

„Í nýju versluninni má einnig finna efnismikið blogg og þar er alltaf hægt að leita í góð ráð og innblástur. Viðskiptavinir hafa tekið vefversluninni mjög vel og var mjög mikið fjör í pöntunum á síðustu Tax- free dögum Hagkaups. Það er okkur mikið ánægjuefni að geta nú þjónustað viðskiptavini okkar um allt land þar sem að við bjóðum upp á sendingar úr vefversluninni hvert á land sem er hratt og vel“ segir Sigurður.

Ný markaðsherferð á vefversluninni ber yfirskriftina Vertu þú! „Við erum öll ólík og allskonar og vildum við minna á þau mikilvægu skilaboð í okkar markaðssetningu. Lífið er hreinlega skemmtilegra í smá lit og öll eigum við að hafa frelsi til að vera við sjálf, alveg eins og við viljum vera,“ segir Sigurður um herferðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK