Rotovia kaupir hverfissteypustarfsemi Berry Global

Berry Global Inc var áður hluti af Promens hf.
Berry Global Inc var áður hluti af Promens hf. Ljósmynd/Aðsend

Íslenskir fjárfestar hafa gengið frá kaupum á hverfissteypustarfsemi Berry Global Inc undir nafninu ROTOVIA sem mun verða stærsta hverfisteypufélag Evrópu, að því er kemur fram í tilkynningu.

Innan Berry Global Inc eru m.a. Sæplast og Tempra, félög með langa og farsæla sögu á Íslandi. En Rotovia hf. er nýstofnað félag í eigu framtakssjóðanna SÍA IV og Freyju ásamt lykilstjórnendum.

Hverfisteypudeild Berry Global Inc var áður hluti af Promens hf. sem selt var úr landi árið 2015 en félagið var á þeim tíma eitt stærsta fyrirtæki landsins.

100 starfsmenn á Íslandi

„ROTOVIA mun hafa sterka stöðu hérlendis og erlendis og þjóna fjölbreyttum hópi viðskiptavina í ýmsum markaðsgeirum en með sérstaka áherslu á matvælaiðnaðinn. Hið nýja félag verður með 14 starfsstöðvar í 10 löndum í Evrópu og Ameríku og hjá því munu starfa alls um 800 manns, þar af um 100 starfsmenn á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.

Kemur jafnframt fram að velta hinna keyptu eininga sé um 18 milljarðar króna, þar af kemur um helmingur frá eigin vörumerkjum sem séu með sterka stöðu á markaði, Sæplasti, Tempra iTUB og Varibox og um helmingur kemur frá framleiðslu á ýmsum hverfisteyptum vörum fyrir kröfuharða alþjóðlega viðskiptavini.

Fyrirtækjaráðgjöf Kviku var fjárfestunum til ráðgjafar í kaupferlinu og BBA//Fjeldco veitti lögfræðiráðgjöf. Sjóður í umsjón Capital Four veitti lánsfjármögnun til kaupanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK