Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Ardian á Mílu

Míla er dótturfélag Símans.
Míla er dótturfélag Símans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Síminn hf. og Ardian France SA hafa skrifað undir samkomulag um tilteknar breytingar á samningi um kaup og sölu 100% hlutafjár í Mílu ehf. sem tilkynnt var um þann 23. október 2021 sem og 22. júlí 2022.

Einnig hefur verið undirrituð sátt á milli Ardian og Samkeppniseftirlitsins sem felst í því að stofnunin samþykkir viðskiptin með tilteknum skilyrðum, að því er kemur fram í tilkynningu frá Símanum.

Lækkun um 3,5 milljarða

Helstu atriði þeirra breytinga sem Síminn og Ardian hafa samþykkt að gera á kaupsamningi fela í sér breytingu á ákvæðum er lúta að heildarvirði viðskiptanna (e. enterprise value) sem áður var 73 milljarðar króna, sbr. tilkynningu Símans þann 22. júlí 2022, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum sem kaupandinn yfirtekur.

Í ljósi skilyrða Samkeppniseftirlitsins hafa Síminn og Ardian nú náð samkomulagi um að heildarvirði viðskiptanna skuli vera 69,5 milljarðar króna sem er lækkun um 3,5 milljarða króna.

Samkvæmt breyttum kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi, sem gert er ráð fyrir að verði í lok september 2022, tæplega 33 milljarða króna í reiðufé og 17,5 milljarða króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Skuldabréfið var áður 19 milljarðar króna eins og fram kom í tilkynningu Símans þann 22. júlí 2022.

Skuldabréfið er framseljanlegt og ber 4% vexti sem er óbreytt frá fyrra samkomulagi. Leiða þessar breytingar á kaupsamningnum til þess að áætlaður söluhagnaður Símans er 38,3 milljarðar króna, að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna, sem er lækkun um 3,5 milljarða króna frá því sem tilkynnt var þann 22. júlí 2022.

Í kynningu á hálfsársuppgjöri Símans sem birt var þann 23. ágúst 2022 má finna nánari útlistun á efnahagsreikningi Símans að teknu tilliti til sölunnar. Stjórn Símans mun fljótlega boða til hluthafafundar þar sem nánar verður gerð grein fyrir viðskiptunum og tillaga lögð fram um ráðstöfun söluandvirðis Mílu.

„Langvinnara en hægt var að sjá fyrir“

„Við hjá Símanum erum afskaplega ánægð með að söluferli Mílu skuli loks lokið. Það reyndist langvinnara en hægt var að sjá fyrir, en nú hefst nýr kafli í fjarskiptasögu Íslands. Síminn mun einbeita sér að því að veita viðskiptavinum sínum hágæða fjarskiptaþjónustu um land allt, en eftirláta öðrum fjárfestingar í innviðum. Ardian, nýr eigandi Mílu, sýndi þolgæði og framsýni í þessu erfiða ferli. Allur íslenskur almenningur má vænta mikils af Ardian og Mílu í uppbyggingu fjarskipta um land allt og njóta góðs af þessum viðskiptum, bæði sem neytendur og sem hinir endanlegu eigendur lífeyrissjóðanna, sem eru stærstu hluthafar Símans,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans, í tilkynningunni.

Langtímafjárfesting

Dr. Daniel von der Schulenburg, framkvæmdastjóri og yfirmaður Ardian Infrastructure fyrir Þýskaland, Benelux löndin og Norður-Evrópu, bætir við:

„Við hjá Ardian erum ánægð með að hafa náð þessum mikilvæga áfanga. Við viljum þakka stjórnendum Símans og Mílu ásamt samkeppnisyfirvöldum fyrir þá miklu vinnu sem þessir aðilar hafa lagt á sig til að ná þessu saman. Míla er langtímafjárfesting fyrir Ardian og ætlum við okkur að veita Símanum og öllum öðrum viðskiptavinum Mílu fyrsta flokks þjónustu á sama tíma og við hröðum uppbyggingu fjarskiptainnviða á Íslandi,“ segir hann.

Nýr kafli tekur við

Jón Ríkharð Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu, hefur þetta að segja um samninginn:

„Það er okkur, starfsfólki Mílu, mikið gleðiefni að þessum kafla sé loks að ljúka og nýr spennandi kafli í sögu Mílu að taka við. Með þennan öfluga bakhjarl sem Ardian er verður Míla sem sjálfstætt félag enn betur í stakk búin að byggja upp og efla fjarskiptainnviði á Íslandi. Nú munum við setja enn meiri kraft í uppbyggingu ljósleiðaratenginga og 5G farsímanets á landinu í samræmi við stefnu nýrra eigenda sem vilja flýta þessari mikilvægu uppbyggingu. Endurnýjun og frekari útvíkkun stofnfjarskipta og stofnleiða er enn eitt mikilvægt verkefni sem nú er í gangi og er lykilatriði fyrir öryggi fjarskipta og um leið notenda. Samanlögð þekking Mílu og Ardian mun þar skipta miklu máli og tryggja trausta framkvæmd þessa mikilvæga innviðaverkefnis.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK