Edelweiss flýgur til Akureyrar næsta sumar

Ljósmynd/Aðsend

Svissneska flugfélagið Edelweiss hefur ákveðið að hefja flug til Akureyrar sumarið 2023. Flogið verður milli Zürich í Sviss og Akureyrar á föstudögum frá 7. júlí til 18. ágúst og verða ferðirnar fram og til baka sjö talsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Isavia. 

Þetta er í fyrsta sinn sem flugfélagið Edelweiss flýgur til Akureyrar en það hefur, síðan 2021, flogið áætlunarflug milli Sviss og Keflavíkurflugvallar. Ferðalangar frá Zürich geta bókað flug á tímabilinu sem og farþegar frá Akureyri, segir enn fremur. Hægt er að bóka flugferðir á vef Edelweiss.

Þá kemur fram í tilkynningunni að Edelweiss segi að Ísland sé einn vinsælasti áfangastaður ferðalanga frá Sviss. Félagið hafi eflt flugleiðina frá Sviss til Keflavíkurflugvallar á síðustu tveimur árum og hafi orðið vart við áhuga ferðafólks á að fara um allt Ísland. Sérstakur áhugi væri á að skoða náttúruna á Norðurlandi.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að flugfélagið Edelweiss hafi  ákveði að hefja flug til Akureyrar,“ er haft eftir Sigrúnu Björk Jakobsdóttiu, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla.

Flýgur til 89 áfangastaða frá Zürich 

„Þetta er afrakstur þess öfluga kynningarstarfs sem Isavia Innanlandsflugvellir, Íslandsstofa, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú  hafa unnið í þéttu samstarfi þar sem áherslan hefur verið á að kynna nýjar  gáttir til Íslands. Auk alls þessa hefur aðkoma íslenskra stjórnvalda skipt sköpum. Edelweiss bætist nú í hóp með Niceair og þýska flugfélaginu Condor sem fljúga milli Akureyrar og áfangastaða erlendis. Condor flýgur jafnframt milli Frankfurt og Egilsstaða næsta sumar.“

Edelweiss flýgur til 89 áfangastaða um allan heim frá Zürich-flugvelli. Félagið flýgur með farþega til og frá Akureyrarflugvelli næsta sumar í Airbus A320 þotu sem tekur allt að 174 farþega í sæti. Edelweiss segir í tilkynningu að félagið sjái tækifæri fyrir farþegar þeirra, sem vilja komast til Akureyrar, að tvinnað saman flugleiðir félagsins til Norðurlands og Keflavíkurflugvallar. Edelweiss er nú í vetur komið í hóp heilsársflugfélaga um Keflavíkurflugvöll með þrjár ferðir í viku allan veturinn og fjórar ferðir í viku síðasta sumar.

Í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands segir Hjalti Páll Þórarinsson verkefnastjóri að það sé mikið gleðiefni fyrir norðlenska ferðaþjónustu og Norðlendinga almennt, að Edelweiss hafi ákveðið að bæta áfangastaðnum Norðurlandi inn í sitt leiðakerfi.

„Það sýnir okkur að Edelweiss hefur trú á áfangastaðnum og sér framtíðartækifæri í þróun ferðaþjónustu hér. Það sýnir okkur líka að markvisst markaðsstarf, á borð við það sem hefur verið unnið í Flugklasanum, og þolinmæði skilar árangri. Flugklasinn hefur undanfarin ár átt í góðum samskiptum við ferðasöluaðila í Sviss sem hafa sýnt þessu áhuga. Samstarf okkar við Austurbrú, Íslandsstofu og Isavia um markaðssetningu á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum hefur svo aukið slagkraftinn í okkar vinnu og það skilar sér í þessum áfanga.  Eftirspurn eftir því að fljúga beint til Akureyrar og Egilsstaða fer vaxandi og ég trúi því að við sjáum áframhaldandi fjölgun á komum erlendra flugfélaga á næstu misserum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK