Ferðaskrifstofur sameinast undir nafninu Verdi

Lúðvík og Ragnheiður.
Lúðvík og Ragnheiður. Ljósmynd/Aðsend

Ferðaskrifstofa Akureyrar og VITA Sport hafa sameinast undir nafninu Verdi. Nýja fyrirtækið verður með tvær starfsstöðvar, bæði í miðbæ Akureyrar og á höfuðborgarsvæðinu.

Ferðaskrifstofa Akureyrar var stofnuð árið 1947 og hefur annast skipulagningu ferðalaga jafnt innan lands sem utan. Hún hefur verið sú eina utan höfuðborgarsvæðisins með svokallað IATA-ferðaskrifstofuleyfi, sem veitir aðgang að bókunum og útgáfu farmiða hjá flugfélögum um allan heim, að því er segir í tilkynningu.

VITA Sport hefur skipulagt íþróttaferðir á vegum ferðaskrifstofunnar VITA, sem stofnuð var árið 2008 og rekin af FERIA, dótturfélagi Icelandair Group.

Bæði fyrirtækin á tímamótum

„Við sameiningu sjáum við fyrir okkur að úr verði sterkt vörumerki, byggt á mjög hæfu og reynslumiklu starfsfólki í ferðabransanum,“ segir Lúðvík Arnarson, framkvæmdastjóri Verdi, í tilkynningunni.

„Bæði fyrirtækin voru á ákveðnum tímamótum, ekki síst með tilliti til tæknilegra þátta eins og bókunarkerfis,“ segir Lúðvík. „Fyrirtækin hafa unnið náið saman í gegnum tíðina og það er góð reynsla af samstarfinu. Þegar hugmyndin kom upp, var báðum aðilum ljóst að til framtíðar væru mikil samlegðaráhrif af því að sameinast og búa til nýtt vörumerki og eitt félag úr þessum tveimur fyrirtækjum.“

Verdi mun leggja áherslu á þá þjónustu sem Ferðaskrifstofa Akureyrar og VITA Sport hafa getið sér gott orð fyrir.

„Við munum að sjálfsögðu halda áfram að þjónusta okkar tryggustu hópa; árshátíðarhópa, saumaklúbba, vinnustaði og íþróttahópa.“ segir Ragnheiður Jakobsdóttir, fjármálastjóri Verdi, í tilkynningunni .

Boðið verður upp á pakkaferðir frá Akureyrarflugvelli og Keflavíkurflugvelli, bæði sólarlandaferðir og borgarferðir. Þá mun Verdi verða áberandi í íþróttaferðum og bjóða ferðir á leiki í enska boltanum, á HM í hestaíþróttum og handbolta, Gothia Cup, Partille Cup og fleira.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK