Samskip krefja Eimskip um bætur

Í kærunni er fullyrt að rannsókn og ákvörðun SKE sé …
Í kærunni er fullyrt að rannsókn og ákvörðun SKE sé fordæmalaus fyrir margar sakir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samskip hafa falið Mörkinni lögmannsstofu að sækja bætur á hendur Eimskipi vegna ólögmætra og saknæmra athafna félagsins gagnvart Samskipum.

Í tilkynningu frá Samskipum segir að Eimskip hafi í sátt við Samkeppniseftirlitið (SKE) lýst því yfir að félagið hafi átt í samráði við Samskip sem efnt hafi verið til á fundi 6. júní 2008 og í framhaldi þess fundar.

„Þessi yfirlýsing félagsins er röng og með öllu tilhæfulaus. Þá er það að sama skapi fullkomlega rangt að félögin hafi átt í samráði um breytingar á flutningakerfi, gert með sér samkomulag um skiptingu markaða, um álagningu gjalda eða um afsláttarkjör,“ segir í tilkynningunni.

Um sé að ræða mjög alvarlega atlögu að Samskipum enda hafi Eimskip með þessu ranglega sakað félagið, sem og núverandi og fyrrverandi starfsmenn félagsins og Eimskips, um ólögmæta og eftir atvikum refsiverða háttsemi.

Sent forstjóranum kröfubréf

„Rangar sakargiftir af þessum toga eru ólögmætar og þær geta einnig verið refsiverðar fyrir þann sem í hlut á. Í þessu tilviki var þeim beint að helsta keppinauti Eimskips og voru augljóslega til þess fallnar að valda búsifjum í rekstri félagsins og hafa óeðlileg áhrif á samkeppnisstöðu félaganna, Samskipum til tjóns,“ segir í tilkynningunni.

Lögmenn Samskipa hafi sent forstjóra Eimskips kröfubréf vegna framangreinds þar sem þess sé einnig óskað að upplýst verði hvaða stjórnendur eða stjórnarmenn hafi komið að ákvörðun um að undirgangast sáttina við SKE og veita stjórnvaldinu með því rangar upplýsingar.

Ákvörðunin efnislega röng

„Jafnframt hafa Samskip í dag skilað inn til áfrýjunarnefndar samkeppnismála kæru vegna ákvörðunar SKE frá 31. ágúst síðastliðnum um að leggja á Samskip 4,2 milljarða króna sekt fyrir þátttöku í meintu samráði við Eimskip. Farið er fram á að ákvörðun SKE verði felld úr gildi og að réttaráhrifum hennar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefndinni.“

Haft er eftir Herði Felix Harðarsyni, lögmanni Samskipa, að þau gagnrýni harðlega ákvörðun SKE enda sé hún efnislega röng. Öll málsmeðferðin sé í brýnni andstöðu við ákvæði samkeppnislaga, sönnunarreglur og fjölmargar grundvallarreglur stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttarins.

„Félagið telur ljóst að fella verði hina kærðu ákvörðun úr gildi í heild sinni vegna þessara alvarlegu annmarka sem leitt hafi til endurtekinna rangra og haldlausra ályktana stofnunarinnar,“ er haft eftir Herði.

Fordæmalaus fyrir margar sakir

Í kærunni er fullyrt að rannsókn og ákvörðun SKE sé fordæmalaus fyrir margar sakir.

„Þær kenningar og ályktanir sem settar eru fram í ákvörðun SKE séu í grundvallaratriðum án tengsla við gögn málsins og raunveruleg atvik í rekstri skipafélaganna sem sökuð séu um samráð.

Þá hafi SKE endurtekið misfarið með efni gagna og horft fram hjá sönnunargögnum og réttmætum skýringum Samskipa og Eimskips sem ekki hafi fallið að kenningum stofnunarinnar. Þá er með sektarfjárhæðinni farið gegn fjölmörgum réttarreglum og ljóst að til grundvallar þeirri ákvörðun liggja engin málefnaleg sjónarmið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK