„Ég veit að það eru enn þá sár í íslensku samfélagi“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra segir að ríkið eigi ekki að standa í áhætturekstri og vera með mikið eignarhaldið í fjármálastofnunum og bönkum. Það sé forgangsatriði að finna leiðir til að halda því verkefni áfram.

„Ég veit að það eru enn þá sár í íslensku samfélagi en ég veit líka að það er rétt ákvörðun að selja bankann og losa um þar og nýta það til góðs fyrir almenning í landinu,“ sagði hún í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 

Málshefjandi var Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sem fór yfir stöðu efnahagsmála, sem hann sagði vera slæma, og spurði í kjölfarið ráðherra út í sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Af hverju?

„Staða efnahagsmála er slæm, stýrivextir í hæstu hæðum og ekki von á því að ársverðbólga komist á viðráðanlegar slóðir fyrr en í fyrsta lagi um mitt næsta ár. Ný hagspá Landsbankans býst við 5,3% verðbólgu á næsta ári og ekki er búist við að ná verðbólgumarkmiðum Seðlabankans á næstu árum, sem ég tel reyndar bjartsýna spá en sjáum hvernig það fer.

Forseti. Í þessu efnahagsástandi vill Sjálfstæðisflokkurinn selja banka og augljósa spurningin sem þarf að staldra við er: Af hverju,“ spurði Björn Leví. 

Björn Leví Gunnarsson.
Björn Leví Gunnarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Staðan vandasöm en ekki slæm

Þórdís sagði ljóst að staða efnahagsmála væri vandasöm „en ég get ekki tekið undir það að hún sé slæm. Þessi vandamál sem blasa við okkur eru að uppistöðu til vegna þess að við erum að vaxa svo hratt.“

Hún benti á, að allir sem selja og kaupa viti að stundum sjái maður eftir því að hafa gert það vegna þess hvernig verð þróast eða breytist og það sé auðvitað einhver óvissa sem sé þarna.

„Það sem ég get lofað er, óháð því hvernig verkefninu vindur fram, að ég mun gera mitt allra besta og vanda mig eins vel og ég mögulega get, draga þá að sem flesta sem vilja að þetta sé almennilega gert. Ég átta mig algerlega á því hvað er undir. (Forseti hringir.) Ég þekki söguna allt frá hruni. Ég veit að það eru enn þá sár í íslensku samfélagi en ég veit líka að það er rétt ákvörðun að selja bankann og losa um þar og nýta það til góðs fyrir almenning í landinu,“ sagði ráðherra. 

Glíma við vanda vegna vanrækslu

Björn tók fram að þingið væri að glíma við þennan vanda í söluferli Íslandsbanka út af vanrækslu. Það væri ekkert ábyrgt við það.

„Hvernig er hægt að fá betra verð fyrir banka sem er í rauninni í rannsókn vegna ákveðins misferlis? Ég myndi segja að það væri mjög erfitt að reyna að selja banka sem er í þannig stöðu. Orð hæstvirts ráðherra um að það verði í rauninni að selja bara til að menn þurfi ekki að taka lán bendir til ákveðins rekstrarvanda en ekki ábyrgrar fjármálastjórnar.“

Verkefni sem ríkisstjórnin ætlar að klára

Þórdís sagði í svari sínu, að traust væri mjög flókið fyrirbæri og það væri hægt að vinna sér inn traust og það væri hægt að tapa trausti.

„Það sem ég get bara sagt er að ég veit að það mun þurfa mikla vinnu þar til fólk finnur fyrir því að það geti treyst því að við séum að losa ríkið undan eignarhaldi á fjármálafyrirtækjum vegna þess að það er það sem er skynsamlegt að gera, auðvitað á þeirri forsendu að það sé rétt gert og að fjármunirnir séu nýttir í þágu almennings í landinu, sem ég er þeirrar skoðanir að sé ekki með því að eiga banka. Og ég er ekki ein um þá skoðun heldur er það yfirlýst markmið að það sé það sem við ætlum að klára,“ sagði Þórdís. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK