Stjórn Marel hafnar viljayfirlýsingu JBT

Marel.
Marel. mbl.is/Hjörtur

Stjórn Marel hefur hafnað óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT Corporation í sambandi við mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel. 

JBT lagði fram viljayfirlýsingu 24. nóvember síðastliðinn. 

Í tilkynningu frá Marel segir yfirlýsingin sé ekki í þágu hagsmuna hluthafa Marel, hún taki hvorki tillit til innra virðis rekstrar Marel, né þeirrar áhættu sem fælist í framkvæmd viðskiptanna.

„Yfirlýst stefna Marel er skýr hvað varðar ytri vöxt og tækifæri til frekari samþjöppunar (e. consolidation) innan geirans eins og framkvæmd stefnu félagsins ber vitni um. Í samræmi við hlutverk sitt og ábyrgð er stjórn Marel tilbúin að leggja mat á vel ígrundaðar tillögur sem endurspegla að fullu virði Marel,“ segir enn fremur í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK