Gagnrýnir harðlega stjórn Marels

Marel
Marel mbl.is/Hjörtur

Adam Epstein, meðstofnandi fjárfestingarfélagsins Teleios Capital Partners LLC skrifar harðort bréf þar sem hann meðal annars gagnrýnir stjórn fyrirtækisins fyrir að hafa ekki gætt að umboðsskyldu sinni gagnvart öllum hluthöfum. 

Hann segir að óskynsamleg stjórnun og fjárhagslegar ákvarðanatökur fyrrum stjórnenda, feðganna Árna Odds Þórðarsonar og Þórðar Magnússonar, hafi skilið Eyri, stærsta hluthafa Marels, eftir á barmi gjaldþrots og Eyrir sé nú í fjárhagslegri endurskipulagningu.

Evrópski vogunarsjóðurinn Teleois Capital Partners er einn stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Marel með 3,3 prósenta hlut. Sjóðurinn styður ákvörðun stjórnar að hafna mögulegu tilboði John Bean Technologies í Marel sem greint var frá á dögunum.

Í bréfi Epstein segir að til að uppfylla umboðsskyldu sína gagnvart öllum hluthöfum verði stjórnin að hefja stefnumótandi endurskoðun á næsta ári til að meta alla kosti þess að ráðast í sölu á fyrirtækinu eða sameiningu.

Epstein segir jafnframt í bréfinu að hagræðingaraðgerðir stjórnenda Marel undanfarna ársfjórðunga bendi til þess að Marel geti náð sömu arðsemi og jafnvel betri árangri þegar aðstæður hjá atvinnugreininni batna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK