28 milljarða halli á viðskiptajöfnuði

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

28,6 milljarða króna halli var á viðskiptajöfnuði við útlönd á fjórða ársfjórðungi síðasta árs.

Það er 107,1 milljarði króna lakari niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 0,3 milljörðum króna lakari niðurstaða en á sama fjórðungi árið 2022, að því er segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Afgangur á viðskiptajöfnuði á árinu 2023 í heild nam 41,4 milljörðum króna samanborið við 65,2 milljarða króna halla árið á undan.

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.614 milljarða króna eða 37,7% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 326 milljarða króna, eða 7,6% af VLF á fjórðungnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK