KEA eignast Ferro Zink að fullu

Jón Dan og Halldór Jóhannsson.
Jón Dan og Halldór Jóhannsson. Ljósmynd/KEA

KEA hefur keypt 30% hlut í Ferro Zink hf. af Jóni Dan Jóhannssyni. Eftir viðskiptin á KEA allt hlutafé í félaginu, sem er með starfsemi á Akureyri og í Hafnarfirði.

„KEA eignaðist fyrst hlut í félaginu árið 2006 og hefur frá þeim tíma bætt við eignarhlut sinn. Jón Dan hefur fylgt félaginu í yfir hálfa öld, fyrst sem starfsmaður, síðar framkvæmdastjóri og eigandi og svo í seinni tíð sem móteigandi KEA í félaginu og stjórnarmaður,” segir í tilkynningu.

„Það þarf að taka stefnumarkandi ákvarðanir um framtíðarskipulag félagsins. Þessi fjárfesting er hluti af þeim áherslum sem við vinnum að núna sem felast í því að fækka verkefnum en um leið að stækka í þeim fjárfestingum sem KEA kemur að,“ segir Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA, í tilkynningunni.

Starfsemi Ferro Zink hf. er á sviði stálsölu, smiðju, málmhúðunar og verslunarrekstrar og var velta síðasta árs tæpir þrír milljarðar króna og starfsfólk um 60 talsins.

Jón Dan segir að nú sé komið að tímamótum hvað aðkomu hans að félaginu varðar en hún spannar yfir 61 ár.

„Þetta fyrirtæki var stofnað af föður og föðurbróður mínum og hóf það starfsemi árið 1960. Ég varð framkvæmdastjóri þess og einn eigenda árið 1989. Ég kveð félagið með söknuði og óska því, starfsfólki þess og eiganda alls hins besta,” segir hann í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK