Tvöþúsundasti rafbíllinn afhentur

Það voru hjónin Jose Vicente Garcia Agullo og Sigrún Garcia …
Það voru hjónin Jose Vicente Garcia Agullo og Sigrún Garcia Thorarensen, sem festu kaup á tvö þúsundasta rafbíl BL og tóku þau við honum í gær.

BL náði þeim áfanga í gærmorgun, að afhenda tvö þúsundasta rafbíllinn frá umboðinu var afhentur nýjum eigendum. Um var að ræða MG ZS EV, sem er nýtt merki í flóru BL sem hóf rafbílasölu í lok ágúst árið 2013 þegar BL kynnti fyrsta fjöldaframleidda rafbíl heims, Nissan Leaf.

Það er til marks um þann veldisvöxt sem orðið hefur í sölu rafbíla á Íslandi undanfarin misseri að það tók BL rúm fimm ár að selja fyrstu eitt þúsund rafbílana, sem var í lok nóvember 2018, en aðeins 21 mánuð að selja seinna eitt þúsundið. Árið 2018 var tíundi hver fólksbíll sem BL seldi rafbíll en á þessu ári stefnir í að hlutfallið verði fjórði hver; um 25%. Frá
2013 hefur BL nýskráð rúm 50% allra nýskráðra rafbíla hér á landi.

Um þessar mundir selur BL tíu gerðir hreinna rafbíla frá sjö framleiðendum eins og meðfylgjandi tafla sýnir. Mikið vatn hefur því runnið til sjávar frá 2013 þegar rafbílasalan hófst. Svo sem sjá má er Nissan Leaf lang söluhæsti rafbíll BL (og raunar söluhæsti rafbíll landsins frá upphafi).

Taflan sýnir einnig hversu miklum árangri Hyundai Kona EV hefur náð á íslenska markaðnum á þeim aðeins tveimur árum sem bíllinn hefur verið boðinn hér á landi enda er hann einn langdrægasti bíllinn í sínum flokki á markaðnum og afar vel búinn. Á næsta ári bætast fleiri hreinir rafbílar í hópinn hjá BL, m.a. frá BMW, Dacia, Nissan og Renault.

Taflan sýnir fyrstu 2000 rafbílana sem BL hefur selt.
Taflan sýnir fyrstu 2000 rafbílana sem BL hefur selt.
mbl.is