Hekla endar árið á toppnum

Tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander.
Tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander.

Hekla endaði árið á toppnum í fjölda seldra fólksbíla til einstaklinga og fyrirtækja með tæplega 20% markaðshlutdeild.

Þrátt fyrir samdrátt í heildarsölu bifreiða árið 2020 jókst sala á nýjum fólksbílum til einstaklinga um 10%. Í nýskráningum fólksbíla til bílaleiga dróst sala saman eða um 58%.

Rafbílar eru í fyrsta skipti vinsælasti orkugjafinn. Ríflega 250% aukning er í skráningu hreinna rafbíla á milli ára.

Audi e-tron
Audi e-tron

Samtals seldi Hekla 26,4% allra vistvænna bifreiða ársins 2020 en til vistvænna bifreiða teljast hreinir rafbílar, tengiltvinnbílar og metanknúnir bílar. Samtals er Hekla með 19% allra seldra hreinna rafbíla ársins 2020 og 35% allra seldra tengiltvinnbíla ársins. Þá komu 90% af metanknúnu bílum ársins frá Heklu, að því er segir í tilkynningu.

Hjá Heklu voru seldar 1963 bifreiðar á árinu. Tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander Phev var vinsælastur, rafbíllinn bíllinn Audi e-tron í öðru sæti og í því þriðja var Volkswagen Golf sem fæst í fjölmörgum aflgjöfum en vinsælastir eru þeir vistvænu.

Hástökkvari ársins hjá Heklu er vafalaust rafbíllinn Volkswagen ID.3 sem var frumsýndur í september og náði fimmta sæti yfir flesta skráða Heklubíla ársins.

Volkswagen bílar fyrr og nú.
Volkswagen bílar fyrr og nú.

„Rafbíllinn Audi e-tron sló heldur betur í gegn á árinu og sló met ársins á undan með 63% fleiri selda bíla á árinu 2020 en á árinu áður ásamt því að Audi tvöfaldaði markaðshlutdeild sína milli ára. 84% af nýskráðum Audi bílum hjá Heklu voru hreinir rafbílar. Mitsubishi seldi 18% fleiri bíla á nýliðnu ári en árið 2019 og er Mitsubishi Outlander Phev áfram vinsælasti tengiltvinnbíll ársins 2020 og hefur hann haldið því sæti allt frá árinu 2016. Alls voru 26,8%allra seldra tengiltvinnbíla á nýliðnu ári af þeirri gerð,“ segir í tilkynningunni.

Hekla endaði árið sem næst stærsta bílaumboð landsins í fjölda nýskráningum eða með um 19% af öllum nýskráðum fólks- og sendibílum. Þá var desembermánuður einkar sterkur hjá umboðinu með 21% allra nýskráðra bifreiða skráða hjá Heklu og tæplega 25% allra nýskráðra fólksbíla til einstaklinga þann mánuðinn.

„Við hjá Heklu erum afar þakklát fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári og það traust sem viðskiptavinir Heklu hafa sýnt okkur. Framundan er nýtt og spennandi ár fullt af áskorunum,“ segir Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu, í téðri tilkynningu.

mbl.is