Hyundai frumsýnir jeppling á viðráðanlegu verði

Nýr Hyndai Bayon.
Nýr Hyndai Bayon. Mynd/Hyundai

Hyundai á Íslandi frumsýnir á laugardag milli klukkan 12 og 16 fólksbílinn Bayon, sem er nýjasta viðbót framleiðandans hér á landi.

Í tilkinningu frá Hyundai segir að Bayon sé ríkulega búinn bíll með góðri veghæð og hárri yfirbyggingu í ætt við jepplinga, þar sem sest er beint inn og setið hátt og er Bayon því fremur rúmgóður og auðveldur í umgengni.

Það á ekki síst við þegar hlaða þarf farangri í 411 lítra farangursrýmið þar sem afturhlerinn opnast einstaklega hátt. Hægt er að stækka farangursrýmið í 1.205 lítra, sem er með því mesta í þessum stærðarflokki.

Góður afþreyingar- og öryggisbúnaður

Staðalbúnaður Bayon er sagður sérlega góður, einkum þegar kemur að öryggi og akstursaðstoð. Meðal staðalbúnaðar í grunnútgáfunni Comfort er t.d. 8 tommu afþreyingarskjár, hraðastillir, brekkubremsa, akreinavari og árekstrarvörn ásamt bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara og aðvörun sé opin hurð.

Meðal þægindabúnaðar má svo nefna lyklalaust aðgengi, skyggðar rúður, hita í stýri, upphitaða hliðarspegla, armpúða við framsæti, Bluetooth, USB og þráðlausa farsímahleðslu svo nokkuð sé nefnt.

Í dýrari útfærslu Bayon, Style, bætast svo við fleiri eiginleikar á bæði öryggis- og þægindasviði, svo sem 10,25 tommu afþreyingar- og upplýsingaskjár, hljómtæki frá Bose, meiri öryggisbúnaður og akstursaðstoð og fleira sem hægt er að kynna sér nánar á vefsíðu Hyundai.

Einkennandi útlit nýrrar línu Hyundai

Eins og nýr Tuscon, Kona og Santa Fe er einkennismerki Bayon hið nýja ytra útlit fólksbílalínu Hyundai, þar sem framendinn er sérlega svipsterkur og grípur augað í umferðinni vegna samspils ljósabúnaðar og heildareiningar framendans.

Þá segir í tilkynningu frá Hyundai að eftirtektarvert sé hve Bayon hefur háan lægsta punkt, 18,3 cm, sem er raunar með því besta sem gerist í stærðarflokknum. Bakssvipur Bayon er ekki síður einkennandi með búmeranglaga afturljósum ásamt stalllaga afturhleranum en hvort tveggja innrammar sterka heildarhönnun Bayon.

Bakssvipur Bayon er einkennandi með búmeranglaga afturljósum.
Bakssvipur Bayon er einkennandi með búmeranglaga afturljósum. Mynd/Hyundai

Snörp 100 hestafla vél með forþjöppu

Hér á landi er Bayon boðinn með snarpri þriggja strokka 100 hestafla bensínvél við sjálfskiptingu og forþjöppu. Bayon er boðinn í tveimur búnaðarútfærslum, Comfort og Style, og er grunnverð bílsins 3.890.000 krónur eins og hægt er að kynna sér nánar hjá umboði Hyundai við Kauptún á laugardag milli 12 og 16. Reynsluakstur er í boði.

mbl.is

Bloggað um fréttina