Get skilið að kynlíf sé erfitt á meðgöngu

Kynfræðingurinn Sigga Dögg segir að það sé ekki ástæða til að láta neitt stoppa sig í því að stunda kynlíf á meðgöngu. Fólk þurfi að finna aðrar leiðir til þess. Hún ræðir um kynlíf á meðgöngu í þættinum Líf kviknar en þættirnir eru sýndir í Sjónvarpi Símans Premium. Þættirnir eru gerðir af Andreu Eyland og byggðir á bókinni Kviknar sem fjallar um meðgöngu og fæðingu ásamt mörgu af því sem foreldrar upplifa þegar nýtt barn kemur í heiminn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert