Segir styttast í litla drenginn

Kim Kardashian verður fljótlega fjögurra barna móðir.
Kim Kardashian verður fljótlega fjögurra barna móðir. AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian staðfesti í sjónvarpsþætti Andy Cohen í gær að hún og Kanye West ættu von á fjórða barninu. Var þetta í fyrsta skipti sem Kardashian tjáði sig um að von væri á barni en fréttir af barnaláninu birtust í erlendum miðlum í byrjun árs. 

Upplýsti hún einnig að barnið væri strákur sem einnig hafði komið fram sem og að von væri á barninu fljótlega. 

„Ég varð full í jólapartýinu okkar og sagði einhverjum. Ég man ekki hverjum ég sagði það þar sem ég verð aldrei full,“ sagði Kardashian en barnið kemur í heiminn með hjálp staðgöngumóður. 

Fyrir eiga hjónin dótturina North sem er fimm ára, soninn Saint sem er þriggja ára og dótturina Chicago 11 mánaða. Chicago kom einnig í heiminn með hjálp staðgöngumóður en samkvæmt People er önnur kona sem gengur með drenginn. 

Kim Kardashian á von á fjórða barninu.
Kim Kardashian á von á fjórða barninu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert