LeBron James með góð uppeldisráð

LeBron James er að mati vefmiðilsins Fatherly frábær fyrirmynd þegar …
LeBron James er að mati vefmiðilsins Fatherly frábær fyrirmynd þegar kemur að uppeldi. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Fatherly er vefmiðill fyrir karlmenn sem hefur það að markmiði að efla þá sem feður. Á síðunni má finna áhugavert efni, allt frá uppeldisráðum í vangaveltur um peninga og hluti sem áhugavert er að eiga fyrir menn með börn.

Skemmtileg myndbönd er á samfélagsmiðlum þeirra, þar sem athygli er vakin á m.a. uppeldisráðum körfuboltastjörnunnar LeBron James. Sonur hans, Bryce, var í uppnámi yfir því að hafa ekki skorað nógu mörg stig í leik sem hann var að spila. LeBron James sagðist vera stoltur af honum um leið og hann fór yfir með syni sínum allt sem hann hefði gert í leiknum sem gerði hann að góðum liðsfélaga. 

Það er auðvelt að heillast af flottum feðrum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert