Uppeldisaðferðir Amal Clooney

Amal Clooney er einn áhugaverðasti lögmaður veraldar um þessar mundir. …
Amal Clooney er einn áhugaverðasti lögmaður veraldar um þessar mundir. Hún er móðir tvíbura sem hún á með eiginmanni sínum, leikaranum George Clooney.

Amal Clooney þykir einn áhugaverðasti lögmaður veraldar um þessar mundir. Hún er konan sem fangaði hjarta leikarans George Clooney. Saman eiga þau tvíbura sem hún leggur áherslu á að læri það allra besta af móður sinni. Þetta kemur fram á vefmiðli Romper.  

Amal Clooney er sjálf ekki mikið fyrir sviðsljósið, en hefur fjallað um aðferðir móður sinnar sem voru til fyrirmyndar að hennar mati þegar kom að uppeldi hennar. „Mamma stóð með sér, var sjálfstæð og útivinnandi. Hún var með þennan fallega jafna lífstíl þar sem vinnan, fjölskyldan og vinir skiptu máli. Að vera gott foreldri að mínu mati er að leiða börnin áfram sem fyrirmynd. Að setja reglur en leyfa þeim að blómstra. Að þau fái að velja það í lífinu sem þau hafa áhuga á og fái tækifæri til að læra að stundum eru hlutirnir erfiðir. Að maður skyldi ekki gefast upp þótt á móti blási og að best er að hugsa lífið í 10 ára tímabilum.“

Þannig fyrirmynd vill hún vera fyrir börnin sín tvö.

View this post on Instagram

A post shared by Amal Clooney (@amalclooneyofficial) on Dec 16, 2018 at 5:25am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert