Vill að Elton John taki barnið í tíma

Meghan og Harry eiga von á barni á næstu vikum.
Meghan og Harry eiga von á barni á næstu vikum. mbl.is/AFP

Harry og Meghan eiga von á sínu fyrsta barni á næstu vikum. Þau virðast nú þegar byrjuð að skipuleggja mennningarlegt uppeldi barnsins ef marka má frétt The Sun. Eru þau sögð vilja fá engan annan en Elton John til þess að taka barnið í píanótíma. 

Elton John var góður vinur Díönu prinsessu og hefur haldið sambandi við Harry. Hann var gestur í brúðkaupi þeirra og spilaði fjögur lög í brúðkaupsveislu Harry og Meghan í maí í fyrra. 

„Meghan hefur verið að segja að hann væri hin fullkomna manneskja til að kenna barninu þeirra á píanó,“ sagði heimildarmaður sem segir að Elton John hafi tekið vel í hugmyndina. „Tónlist er mjög mikilvæg bæði Meghan og Elton svo hver væri betri?“

Elton John í brúðkaupi Harry og Meghan.
Elton John í brúðkaupi Harry og Meghan. mbl.is/AFP
Díana prinsessa og Elton John árið 1997.
Díana prinsessa og Elton John árið 1997. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert