Fylgjendur AIVAX-fjölskyldunnar eru á því að ljósmyndir þeirra séu ljós í lífi þeirra. Instagram-reikningur Vanessu Rivera og fjölskyldu hennar er þess virði að skoða. Reikningurinn heitir: Live of AIVAX og líkist ævintýralegri kvikmynd eða sirkusfjölskyldu.
AIVAX stendur fyrir nöfn þeirra, Anthony, Indie, Vanessa, Adyline og Xander. Líf AIVAX fjallar um líf ungrar fjölskyldu sem búsett er í Kaliforníu en á rætur að rekja til Mexíkó. Líf þeirra er fullt af ævintýralegum hlutum. Í raun svo ævintýralegt að hver ný mynd virðist koma fylgjendum fjölskyldunnar á óvart.
Vinsældir fjölskyldunnar hafa aukist gífurlega á undanförnum árum. Þegar hún byrjaði að birta myndir í enda ársins 2013 voru myndirnar teknar aðallega á síma en með árunum hafa ljósmyndirnar orðið bjartari og ævintýralegri.
Hægt er að nálgast The Life of AIVAX Podcast og blogg þar sem þau fjalla um allt milli himins og jarðar.
Fjölskyldan er ekki að reyna að vera fullkomin og er dugleg að deila aðferðunum sem hún notar til að vinna ljósmyndirnar.
Eins er áhugavert að lesa sögurnar við ljósmyndirnar, því þar er verið að ræða raunverulega hluti sem geta komið fyrir venjulegar fjölskyldur þótt endirinn á sögunum sé vanalega ævintýralegur.
Börnin eru í aðalhlutverki og koma stundum með bestu lausnirnar. Sumar sögurnar eru góða að lesa fyrir börnin fyrir svefninn.
View this post on InstagramA post shared by Vanessa (@the_life_of_aivax) on May 19, 2019 at 11:35am PDT
View this post on InstagramA post shared by Vanessa (@the_life_of_aivax) on Sep 21, 2018 at 11:49am PDT
View this post on InstagramA post shared by Vanessa (@the_life_of_aivax) on Sep 20, 2018 at 11:27am PDT