Mercedes-Benz með tímamótabarnastól

Þessi glæsilegi barnastóll var kynntur í vikunni.
Þessi glæsilegi barnastóll var kynntur í vikunni.

Mercedes-Benz kynnti í vikunni nýjungar í öryggismálum á ESV-öryggisráðstefnunni. 
Ein af nýjungunum er PRE-SAFE Child-barnabílsætið. Ökumaður getur fylgst með hjartslætti, andardrætti og líkamsstöðu barnsins. Ef bíllinn skynjar hættu á árekstri aðlagast PRE-SAFE Child sætið til að tryggja rétta stöðu barnsins og lágmarka hættuna á meiðslum.

Stóllinn er ekki bara öruggur og búinn nýjustu tækni heldur er hann einstaklega fallega hannaður eins og flest sem bílafyrirtækið kemur á markað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert