Leikkonan Kate Hudson birti á dögunum fyrstu myndina af sér og fjölskyldu sinni eftir að yngsta barn hennar Rani kom í heiminn.
Hudson á þrjú börn með þremur tónlistarmönnum. Soninn Ryder, 15 ára, á hún með Chris Robinson. Soninn Bingham, 8 ára, á hún með Matthew Bellamy. Hina 8 mánaða Rani Rose á hún með núverandi kærasta sínum Danny Fujikawa.
Hudson lítur undan þegar smellt var af en Fujikawa og strákarnir horfa í myndavélina. Litla Rani kippir sér lítið upp við myndina, en hún er í forgrunni.
View this post on InstagramA post shared by Kate Hudson (@katehudson) on Jun 18, 2019 at 9:55am PDT