Auglýsti megrunar-te fyrir óléttar konur

Amber Rose fékk á baukinn frá Jamil.
Amber Rose fékk á baukinn frá Jamil. mbl.is/AFP

Fyrirsætan Amber Rose, sem gengur nú með annað barn sitt, auglýsti megrunar-te fyrir óléttar konur á Instagram í gær. Færslan var birt í samstarfi við fyrirtækið Flat Tummy sem framleiðir hinar ýmsu megrunarvörur. 

Að sögn Rose hjálpar teið við að losna við bjúg og ógleði. Hún tekur einnig fram að óhætt sé að drekka teið á meðgöngu og á meðan brjóstagjöf stendur. 

Önnur leikkona, Jameela Jamil, tók eftir færslunni á Instagram og var alls ekki hrifin. Jamil benti á að það gæti ekki verið að FDA (matvælaeftirlitið) í Bandaríkjunum væri búið að samþykkja þessa vöru. 

Jamil hefur verið dugleg að skamma stjörnur opinberlega fyrir að mæla með megrunarvörum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert