Aftur með ungbarn 18 árum síðar

Brittany Lopez og Christian Slater eignuðust sitt fyrsta barn saman.
Brittany Lopez og Christian Slater eignuðust sitt fyrsta barn saman. mbl.is/AFP

Leikarinn Christian Slater eignaðist nýlega dóttur með eiginkonu sinni Bittany Lopez, þetta staðfesti talsmaður leikarans við E!. Hjónin gengu í það heilaga árið 2013. Þetta er þó ekki fyrsta barn Slaters en hann á tvö börn fyrir með fyrrverandi eiginkonu sinni. 

Slater varð fimmtugur í ágúst og er töluvert eldri en eiginkona hans. Hann á eitt hjónaband að baki og eru börn hans úr því hjónabandi töluvert eldri en litla systir þeirra. Elsta barn hans er tvítugt og það næstelsta 18 ára. Það er langt síðan Slater var í því að skipta um bleyjur síðast. 

Slater átti góðu gengi að fagna sem leikari í Hollywood á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Ferill hans gekk í endurnýjun lífdaga þegar hann tók að sér hlutverk í sjónvarpsþáttunum Mr. Robot fyrir nokkrum árum og hefur hann þrisvar verið tilnefndur til Golden Globe-verðlauna fyrir hlutverk sitt í þáttunum og einu sinni unnið styttuna eftirsóttu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert